Hættur 18. maí, 2008
Posted by Ásgeir in Vitleysa.2 comments
Ég hef einhvernvegin aldrei neitt merkilegt til að segja frá þessa dagana, fyrst ég hitti ykkur flest reglulega núna. Ætli ég seti þá bloggið ekki bara á pásu þangað til ég fer í þriggja mánaða sjálfboðaliðaferð til Úsbekistan eða eitthvað álíka kreisí
Ich habe ein bisschen Deutsch gelernt :) 5. maí, 2008
Posted by Ásgeir in Þýskaland.13 comments
Glaubt ihr das? Mein erste blog auf Deutsch. Ich habe früher mit Carolina aus Brasilien gesprochen und sie hat gesagt es ist sehr kalt bei ihr, 12°C und sie hat gesagt sie müsste zwei Jacke tragen
Hier in Island ist ungefähr 10-13°C und ich finde es ziemlich warm. Komisch
Morgen habe ich gebürtstag. 20 Jahre alt :S ich finde es nicht toll so alt zu werden. Es erinnere mich am meinen fünften gebürtstag. Fühlt wie vorgestern.. Aber ich habe schon zwei geschenke bekommen. Von meinen Brüder und seine frau ein t-shirt und ein Bettlaken und von einige Pfadfinderfreunde Medizinspielzeuge und eine Körperbuch.
Ich habe nichts besonders gemacht die letzte Tage. Nür gearbeitet als ein Elektriker und ein Maler (ich bin nicht sicher wie das heisst auf Deutsch). Alle andere leute haben Prüfungen so ich habe nicht so viel zu tun. Vielleicht sollte ich für meine Prüfung lernen, aber est ist nicht vor den nechsten ein und halbe Monat.
Ich glaube nicht viele die diesen blog lesen können das verstehen
Ich glaube nür Rakel versteht ein bisschen Deutsch, mein Vater kann zwei oder drei Wörter verstehen, aber die andere verstehen gar nichts
Biss bald!
Tschüss
Meiri stærðfræði 30. apríl, 2008
Posted by Ásgeir in Daglegt líf, Pæling, Vitleysa.5 comments
Ég er mega duglegur. Fór með umsóknina um inntökuprófið í læknisfræði niðrá Tanngarð áðan. Sjáum hvort þetta gangi betur núna en síðast. Elísabet er ekki jafn mega dugleg, ekki einu sinni búin að ákveða sig hvort hún nenni í prófið eða ekki.
Hvort er gæinn að segja Bahama eyja, einsog í eyjur/Ísland er eyja, eða Bahama heya, bara uppífyllingarorð..? Er að verða brjálaður á þessu hérna
OG af hverju í ósköpunum hafa fyrirtæki einsog Bónus og Krónan ekki efni á því að hafa einn heftara á hverjum kassa? Geri dáldið af því að taka nótu fyrir dóti sem ég kaupi (fyrir skátafélagið) og þarf alltaf að bíða í hellings tíma á meðan verið er að rétta eina heftarann á svæðinu á milli allra kassanna til þess eins að komast að því að hann er stíflaður eða vantar hefti í hann og þá tekur við meira vesenið að laga það. Ef ég ætla einhverntíman að vera eini vinnandi Íslendingurinn á kassa í Bónus ætla ég sko að koma með eigin heftara og vera fljótastur að þessu
Ef þið fáið einhverntíman ávísun frá mér megiði búast við einhverju svona:

Þrjátíu og tveir 29. apríl, 2008
Posted by Ásgeir in Vitleysa.4 comments
Tala dagsins er:
32
Ég var að hugsa um að koma með leik jafn fáránlegan og Núið sem hún Rakel vinkona bloggaði um í dag. Hann virkar þannig að ég kem með tölu á hverjum degi á bilinu 1 – 100 og sá sem giskar næst henni fær gjafabréf á eins dags útiveru í Heiðmörk, að því gefnu skilyrði að Mars sé ekki innan tríkvartþrírótar við Venus og Galíleó. Gjafabréfið gildir í tvo daga frá útgáfu þess.
Fór í nýja keppni við Rakel. Hver ætti fleiri vini. Hef reyndar ekki hugmynd um hver vinnur, en hérna eru einhverjar tölur:
17 vikur (2. vika í Janúar til núna), samtals 2.193 heimsóknir og það gera 129 stykki á viku. Dem ég er strax búinn að tapa fyrst rakel er með 110 heimsóknir á þrem dögum. Mest var það nú samt 316 heimsóknir í viku 8. Miðvikudaginn 13. febrúar komu flestir, eða 71. Þannig að ef við tökum stærsta daginn minn og þinn Rakel, þá vinn ég ![]()
Á þessu tímabili bloggaði ég 38 sinnum og fékk 160 komment
Vá, svo kanski hugsanlega blogga ég svona 20 sinnum í viðbót út árið
Þriðja sæti! 28. apríl, 2008
Posted by Ásgeir in Daglegt líf.6 comments
Var að dunda mér við að skoða b2.is áðan. Er þá ekki bara listi yfir 15 nördalegustu úrin. Hvað sé ég svo í þriðja sæti listans!!! Ekki bara fallega binary úrið mitt
http://dinbror.dk/mrbula/gallery/geekwatch.php
3rd – The COOL Binary watch
Hugmyndaauðgun 25. apríl, 2008
Posted by Ásgeir in Pæling, Vitleysa.1 comment so far
Spurning hvort að glitnismenn hafi fengið hugmyndir einhversstaðar þegar þeir bjuggu til lógóið sitt. Það er nú alveg smá svipur með þessu


Datt þetta í hug þegar ég sá coca-cola bíl fyrir framan Nings á stórhöfðanum, beint fyrir neðan glitnismerkið
Toys”R”Us 17. apríl, 2008
Posted by Ásgeir in Vitleysa.1 comment so far
Ég er búinn að fatta af hverju þeir geta selt dót svona ódýrt hjá Toys”R”Us.. Þeir bjuggu bara til eina auglýsingu og nota hana svo bara endalaust. Keyrði á eftir strætó í dag og þar var ennþá auglýsingin “Sjáumst í Kópavogi 18. október” frá þeim. Þeir eru semsagt ennþá að auglýsa opnunarhátíðina hjá þeim sem var í fyrra
Of latur til að skrifa meira. Búinn að vera að sendast um allan bæ í dag fyrir íslandsmót iðnnema.. (Breytt: Pabbi er svo nútímalegur að skoða blogg að hann benti mér á að þetta héti íslandsmót iðngreina)
Heima 16. apríl, 2008
Posted by Ásgeir in Daglegt líf.2 comments
Þá er ég kominn heim eftir hreint frábæra útlandaferð. Tveir mánuðir í þýskuskóla í München og svo hálfur mánuður í barnapössun í Danmörku. Ekki frá því ég hafi lært helling. Get allavegana þvegið þvottinn minn núna
og jú, kanski eitthvað í viðbót.
Ætlaði að fá mér vinnu aftur í leikskólanum áður en ég fer að vinna í Útilífsskólanum í sumar. Fór og talaði við aðstoðarskólastjórann og hún sagðist ekki getað lofað mér vinnu. Skólastjórinn kemur í næstu viku og ég þarf að tala við hana, útaf því að það var talað við hana um daginn að hún væri með ALLTOF MIKIÐ AF STARFSFÓLKI.. Það þótt mér frekar undarlegt að það væri of mikið af starfsfólki á leikskóla
Núna er það bara að hanga yfir annarri seríu af House
Anatomiu brandari 12. apríl, 2008
Posted by Ásgeir in Daglegt líf, Vitleysa.4 comments
In court:
Q: “Doctor, did you say the victim was shot in the woods?”
A: “No, I said he was shot in the Lumbar region”
Ég kem heim á morgun. Búinn að vera að spá í því hvað eigi að vera mitt fyrsta verk þegar ég kem heim og er eiginlega kominn að niðurstöðunni að fá mér Egils Malt.. Restin er óráðin, einhverjar góðar hugmyndir um must-do þegar maður kemur heim eftir langan tíma? Ætli ég fari svo ekki að vinna aftur á leikskólanum í svona mánuð og hálfan til áður en útilífsskóli Seguls tekur við.
Erum held ég að fara á Bakken á eftir og svo er það vonandi Jensen’s buffhús í kvöldmat
Þunglyndur 7. apríl, 2008
Posted by Ásgeir in Daglegt líf.5 comments
Tvö atóm eru að labba eftir götu þegar annað segir:
Neih, andskotinn! Ég er búinn að tapa einni róteindÞað er nú aldeilis slæmt!!
Þá segir hitt atómið: Hvah, þúst, vertu ekki svona neikvæður!!
HAHA
En annars er ég dáldið leiður núna. Geri lítið annað en að spila tölvuleiki og horfa á sjónvarpið, ásamt því jú að passa litlu frænku, er orðinn nokkuð ágætur í því
En grjóni á fyrstu seríuna af House á DVD (die video, die) og ég sökk mér alveg hreint í hana. Svo þegar ég var búinn með hana þá var ekkert meira House til, svo ég varð bara leiður og vonlaus og tómleiki einkennir líf mitt. Matarlystin er líka í ólagi og ég á erfitt með að koma mér framúr á morgnana. Eins gott það eru bara 6 dagar eftir af dvölinni og ég get farið heim og fengið mér Malt

