57 klukkutímar 30. janúar, 2008
Posted by Ásgeir in Þýskaland.1 comment so far
Ætli alvöru biskupinn hreyfi sig einhverntíman á ská?
Mögnuð myndbönd sem ég hvet alla til að reyna að herma eftir:
Myndband 1: Daft Hands – Harder, Better, Faster, Stronger
Myndband 2: Daft Punk – Harder Bodies Faster Stronger
Núna eru bara 3 dagar í útlandaferð. Nákvæmlega sirkabát 57 klukkutímar. Þar af á ég eftir að sofa í sirka 24 klukkutíma og vinna í 8 tíma. Það gefur mér 25 klst til að klára að kveðja eitthvað fólk, pakka niður dótinu mínu og njóta síðustu mínútnanna af þessum árfjórðungi sem ég verð hér á landi
Smá brandari sem ég stal af Rakeli:
Einu sinni voru tvær tyggjókúlur sem fóru í bíó og í hléinu fór önnur á klósettið. Þar heyrði hún snökt í fjarska. Hún gekk svo á hljóðið og sá þar hangikjöt sem var að gráta og hún spurði:
Afhverju ertu að gráta?
Svar: ég kann ekki að hjóla

Marienplatz – München
Litla frænka 27. janúar, 2008
Posted by Ásgeir in Vitleysa.6 comments
var nefnd Eyrún Lára Sigurjónsdóttir í skírn sinni í dag.

Mynd sem ég tók á webcamið, einnig á Flickr síðunni minni. ![]()
Fullt af myndum af henni á heimasíðu mömmu hennar aldisrun.com , en sá linkur er einnig hér hægra megin á síðunni.
6 dagar í Þýskalandsferð, þó það séu reyndar 7 dagar þangað til ég fer eiginlega til Þýskalands, gisti eina nótt hjá bróa í Danmörku. Ekki ennþá byrjaður að pakka, en farinn að pæla í því
Grjóni og co. eru eiginlega í herberginu mínu, svo ég á dáldið erfitt með að komast þangað inn fyrir draslinu þeirra. Þau fara aftur út á þriðjudaginn, svo þá hef ég smá tíma til að koma fataskápnum mínum fyrir í töskunni..

Þokkalega í formi 24. janúar, 2008
Posted by Ásgeir in Vitleysa.4 comments
Ég hef komist að því að ég er nú bara í mjög góðu formi. Allir sem segja að ég sé ekki í formi meiga éta hattinn sinn á stundinni! Ef þú neitar að ég sé í formi ertu gjörsamlega að afneita náttúrulögmálum, Isaac Newton, Stephen Hawking og þeim öllum saman. Ertu virkilega að reyna að segja að HRINGUR sé EKKI form??
Topp 7 listinn yfir bestu daga vikunnar:
- Föstudagur: Ekkert er betra en frelsis-tilfinningin í enda langrar vinnuviku.
- Laugardagur: Færð að sofa út eftir átök gærdagsins.
- Fimmtudagur: Kemst í helgarfílinginn.
- Sunnudagur: Á aðra höndina er þetta dagur hvíldarinnar. Á hina höndina er næstumþví kominn mánudagur.
- Miðvikudagur: Ekki svo slæmur, fer að líða að næstu helgi og ekki svo langt frá síðustu helgi.
- Þriðjudagur: Aðeins-betri frændi mánudagsins.
- Mánudagur: Ég veðja að Satan hafi fæðst á mánudegi.
Í gamla daga var alltaf talað um að flott kona væri í þessum málum: 90-60-90 (þ.e. ummálin um brjóstin, mittið og mjaðmirnar). Nýju málin eru svona 92-42-90 (með breyttum mælieiningum: 92ja ára, með 42ja stiga hita og með 90 milljónir inná bankabók)
Annars allt gott að frétta hérna, 9 dagar í að ég fari til Þýskalands
Þá þarf maður nú að fara að taka til sjálfur og rédda sér sjálfur að borða. Mestar áhyggjur hef ég samt af því hvort ég eigi nóg af fötum ásamt þeim sem ég hugsanlega kaupi mér úti til þess að þurfa ekkert að þvo þvott fyrr en ég kem til Danmerkur. Hvað haldiði ég þurfi marga boli fyrir 8 vikur?
E.S. Af hverju eru þeir sem keyra hægar en við fávitar en þeir sem keyra hraðar en við glannar?
Djúpar pælingar 18. janúar, 2008
Posted by Ásgeir in Vitleysa.1 comment so far
- Hvað myndi látbragðsleikari gera ef hann yrði bundinn við stól og spiluð tóm kasseta í botni fyrir hann?
- Ef persóna með tvöfaldann persónuleika hótar sjálfsmorði, er það þá gíslataka?
- Pælið í því hversu sjórinn væri miklu dýpri ef ekki væru til svampdýr
- Hver er hraði myrkursins?
- Af hverju er ekki framleiddur kattamatur með músabragði?
- Ef þú ætlar að senda einhverjum Bubble-wrap, inní hvað pakkaru því?
- Af hverju sótthreinsa þeir sprauturnar fyrir bannvænar stungur?
- Eru sérstaklega frátekin bílastæði fyrir ó-fatlaða á ólympíuleikum fatlaðra?
- Samanber rjúpuseason og gæsaseason, af hverju má ekki veiða á túristaseason-um?
- Er Disney World ekki mannagildra stjórnuð af mús?
- Ef það er núll gráðu kalt úti, og það er spáð helmingi kaldara á morgun, hversu kalt verður þá?
- Af hverju ýtir maður fastar á takkana á fjarstýringunni þegar maður veit að hún er batteríslaus?
- Fyrst að ameríkanar kasta hrísgrjónum í brúðkaupum, kasta kínverjar þá hamborgurum?
- Ef heimurinn er allt og vísindamenn segja að heimurinn sé að stækka, út í hvað er heimurinn þá að stækka?
- Ef þú ferð í leigubíl og leigubílsstjórinn keyrir afturábak, skuldar hann þér þá pening á endanum?
- Ef tré fellur í skóginum og enginn sér það, gera hin trén þá grín að þessu tré?
- Af hverju eru GULrætur appelsínugulari en APPELSÍNUR?
- Af hverju eru 5 atkvæði í “einsatkvæðisorð”?
- Segðu manni að það séu 400 milljarðar stjarna og hann trúir þér. Segðu manni að bekkurinn sé nýmálaður
- og hann verður að tékka.
- Af hverju kaupir maður vöru sem tekur 2000 sturtanir að losna við?
- Af hverju þvær maður handklæði? Er maður ekki hreinn þegar maður notar þau?
- Af hverju er Tarsan ekki með skegg?
- Fyrst að maðurinn þróaðist úr öpum, af hverju eru þá ennþá til apar?
- Lifir gift fólk lengur en einstæðingar, eða VIRÐIST það bara lengra?
- Fór í bókabúð um daginn og spurði afgreiðslukonuna hvar Sjálfshjálpar-deildin væri, og hún sagði að ef hún segði mér það myndi það eyðileggja tilgang deildarinnar.
*Þýtt af mér af erlendri síðu
Einelti á vinnustað 16. janúar, 2008
Posted by Ásgeir in Vitleysa.5 comments
Ég var á starfsmannafundi uppá leikskóla eftir vinnu í dag og Júlla leikskólastýra var að ræða ýmis málefni við okkur, starfsmannaferð, trúnaðarlækni, ánægjukönnun og fleira misskemmtilegt. Hún er nýbúin að tala um einelti við okkur og hvernig henni finnist hún ekki sjá neitt á þessum vinnustað en það geti að sjálfsögðu legið undir og jaríjaríjarí blablabla.. Næsta mál á dagskrá er að við eigum að taka einhverja nafnlausa Já/Nei ánægjukönnun sem vinnueftirlitið bjó til. Auðvitað hefjast umræður um ákveðnar spurningar, og í fyrirmælunum stendur að merkja eigi aðeins við já EÐA nei, ekki bæði. Einhverjum fóstrunum finnst að við sumar spurningar sé ekki hægt að velja bara annað svarið, vanti auka svarmöguleikann “stundum”. Eftir smá svona umræður segir Júlla yfir allan hópinn: “Stelpur mínar, ef ykkur finnst að “nei” komi til greina þá bara merkiði við það, við vitum alveg að stundum getur veriðerfitt að velja á milli…..”. Þá segi ég upphátt við hana: “Heyrðu Júlla, svona fyrst við erum nýbúin að ræða eineltið, þá finnst mér stundum dáldið óþægilegt að vera alltaf kallaður stelpa!” auðvitað segi ég þetta í gríni og vel hlegið að, en það sem bætir bara ofaná þetta er að ég fékk svona kaffipakka í jólagjöf frá vinnunni og á miðanum sendur “KÆRA ÁSGEIR”…
Annars líður mér og dánu tánöglinni minni nokkuð vel. Já, tánöglin á annarri stórutánni minni er dáin og er að detta hægt og rólega af
Fór í fótsnyrtingu á mánudaginn
Konan sagði að það væri ný nögl að vaxa undir og vildi reyna að halda gömlu á sem lengst, en ég fékk fínasta dekur þarna og mæli sterklega með þessu
17 dagar í brottför til Danmerkur
Bróðir minn er líka að koma heim á morgun, hann er að fara að skíra litlu dóttur sína þarnæstu helgi. Voðavoða gaman
Ég uppgötvaði Birtu og Bárð geisladiskinn í dag. Var blöðruball niðrá leikskóla í tilefni þess að í gær átti einn strákurinn lífafmæli (tvö ár held ég síðan hann fékk nýja lifur eða eitthvað svoleiðis). Spiluðum einhver lög fyrir börnin úr ghettoblasternum okkar og þau léku sér með uppblásnar blöðrur á meðan. Alma setti Birtu og Bárð geisladiskinn í tækið og ég fór að hlusta og þetta var alveg æðislega fyndið
Var fljótlega búinn að sparka börnunum í burtu og sat sjálfur að hlusta á
Þarf að útvega mér þennan disk, á einver hann?

Ferðaplanið Þýskaland-Danmörk 13. janúar, 2008
Posted by Ásgeir in Þýskaland.2 comments
Einhverjir hafa verið að syrja hvenær ég fer og hvert ég er að fara, svo hérna kemur þetta að mestu leiti:
- 2. febrúar flýg ég til Danmerkur með Icelandair og gisti hjá bróður mínum í eina nótt. Hjálpa honum að flytja í nýja húsið sitt.
- 3. febrúar flýg ég til München í syðri hluta Þýskalands með SAS og byrja í skólanum 4. febrúar.
- Þar verð ég síðan mestanpart ferðarinnar í þýskuskóla.
- Gisti á einhverju sem skólinn kallar “Youth Hotel” sem ég giska á að sé eitthvað millistig hótels og farfuglaheimilis.
- Fer þar daglega (virka daga) í skólann 9-13 og get svo skoðað mig um eftir hádegi.
- Það eru settar ferðir með skólanum 2 í viku og svo helgarferðir í hverjum mánuði og má nefna: Karnival, BMW-World, Allianz völlur Bayern-München liðsins heimsóttur, helgarferð til Lindau, Pöbbakvöld, keila og svo að sjálfsögðu helstu söfnin og kastalar í nágrenni borgarinnar.
- Klára skólann 28. mars og flýg til Danmerkur með SAS 29. mars
- Verð þar hjá bróður mínum að passa barnið hans og slappa meira af í tvær vikur
- Kem síðan aftur heim 13. apríl
Þetta er svona helsta dagskráin, vantar örugglega eitthvað inní
Sjálfsafgreiðslan 12. janúar, 2008
Posted by Ásgeir in Vitleysa.2 comments
í Krónunni er æðisgengilega undarleg. Hljómar alveg ótrúlega sniðugt, en er svo ekkert endilega fljótari en gamla venjulega aðferðin. Búinn að prófa þetta tvisvar núna, og komst að því áðan að ef maður tekur ekki hlutina upp úr körfunni í nákvæmlega þeirri röð sem þú ætlar að setja þá í pokann þá geturu lent í veseni, mátt ekki taka hluti sem þú ert búinn að skanna uppúr pokanum áður en þú skannar næsta til að koma honum fyrir því það er vigt sem mælir þetta allt og massavesen :S
Mjög skemmtilegt fyrirbæri samtsemáður og gaman að fá að gera þetta sjálfur, en ef þú virkilega ert að flýta þér mæli ég bara með kassadömunum
Var að grafa um í tölvunni áðan og setti inn nokkrar myndir á flickr síðuna mína. Hyggist nota hana undir myndir sem ég tek útí Þýskalandi. Þarf reyndar þá kanski að fá mér pro-aðgang, því núna má ég bara uploda 100 mb af myndum og ef ég ætla að kaupa mér myndavél úti þá gæti vel verið ég taki alveg slatta meira af myndum en það. Annars er hægt að komast inná síðuna í gegnum myndina hér hægra megin á síðunni

Jólin búin … 12. janúar, 2008
Posted by Ásgeir in Vitleysa.add a comment
… í þetta sinn.
Já eða dáldið langt síðan reyndar
En svona getur nú maður verið duglegur í að blogga, sérstaklega þegar maður býr til blogg í einhverju æðiskasti og gleymir svo maður hafi búið það til ![]()
Ég fékk Þýskalandsferð, tevur, ullarnærföt frá Ortovox, þyrlu-vekjaraklukku, Heimsmetabók Guinnes 2008, Rummikubb, [teach yourself] German phrasebook (eða þýsk frasabók), hnútabók, Hitchhiker’s guide to the galaxy á DVD (sem reyndar heitir núna The Bourne Ultimatum afþví ég átti hina fyrir), gel, já HÁRGEL, og margt fleira skemmtilegt undan trénu þetta árið, eða já, á síðasta ári
Á eftir að taka dálítinn tíma að ná þessu að það sé komið 2008 :/
Muniði ekki eftir 2000 vandanum? Heimurinn hélt niðri í sér andanum yfir að allar tölvutengdar sprengjur spryngju á miðnætti og flugvélarnar og gervihnettirnir kæmu hrapandi af himnum? Svipað vandamál framundan:

