57 klukkutímar 30. janúar, 2008
Posted by Ásgeir in Þýskaland.trackback
Ætli alvöru biskupinn hreyfi sig einhverntíman á ská?
Mögnuð myndbönd sem ég hvet alla til að reyna að herma eftir:
Myndband 1: Daft Hands – Harder, Better, Faster, Stronger
Myndband 2: Daft Punk – Harder Bodies Faster Stronger
Núna eru bara 3 dagar í útlandaferð. Nákvæmlega sirkabát 57 klukkutímar. Þar af á ég eftir að sofa í sirka 24 klukkutíma og vinna í 8 tíma. Það gefur mér 25 klst til að klára að kveðja eitthvað fólk, pakka niður dótinu mínu og njóta síðustu mínútnanna af þessum árfjórðungi sem ég verð hér á landi
Smá brandari sem ég stal af Rakeli:
Einu sinni voru tvær tyggjókúlur sem fóru í bíó og í hléinu fór önnur á klósettið. Þar heyrði hún snökt í fjarska. Hún gekk svo á hljóðið og sá þar hangikjöt sem var að gráta og hún spurði:
Afhverju ertu að gráta?
Svar: ég kann ekki að hjóla

Marienplatz – München

Hahaha, þetta er án efa besti brandari í heiminum
Ég á eftir að sakna þín, mundu að hitta mig í kvöld, á eftir að láta þig fá svaka flotta gjöf
Hringdu bara þegar þú ert laus