Myndir, langt síðan síðast 28. febrúar, 2008
Posted by Ásgeir in Daglegt líf, Þýskaland.add a comment
Já, ég fattaði að það er dáldið síðan síðustu myndir komu og er það eiginlega vegna þess að ég hef ekki verið nógu duglegur við að taka þær og heldur ekki nógu duglegur að skoða allt, en meina, það er nógur tími eftir!
Lindau – litli bærinn (3000 manns á eyju sem tekur 10-15 mínútur að labba endilanga) með góða veðrið síðasta laugardag
Ítalskur matur -Var svona alþjóðadagur í síðustu viku þar sem við fengum að smakka ýmislegt frá öllum heimshornum. Ítalinn í bekknum mínum var veik, svo hún kom með smá fyrir okkur í þessari viku og smakkaðist bara mjög vel.
KFC München vs. KFC Reykjavík 27. febrúar, 2008
Posted by Ásgeir in Pæling, Vitleysa, Þýskaland.11 comments
Núna er ég búinn að fara tvisvar á þennan eina KFC stað hérna í München og er þetta ekki alveg nákvæmlega eins og heima. Ég fæ mér bara Zinger borgara-máltíð einsog venjulega og það fyrsta sem ég sé þegar ég tek við bakkanum er að frönsku kartöflurnar koma í svona glerskál, en ekki pappapoka einsog heima. Þetta þýðir að franskarnar eru ekki ógeðslega sveittar, eins og er nú bara alltaf á KFC heima. Brauðin eru líka öðruvísi. Þau eru einhvernvegin munstruð hérna, eins og einhverskonar fansý rúnstykki, og líka harðari en venjulega. Svo er nú aðalmálið að zingerkjötið sem er sterkara en það venjulega er ekki svo sterkt heima en hérna er þetta bara einsog að tyggja jalapeno, miklu sterkara en þetta á að vera. En stærsti munurinn er nú í verðinu. Þessi máltíð kostaði mig 4,89 evrur (sirka 490 íslenskar) en að mig minnir kostar þessi sambærilega máltíð 799 krónur á klakanum.. Dáldið mikill munur, hérna er 40% ódýrara en heima.
Í gær átti einn bekkjarfélagi minn afmæli, 24 ára gamall kallinn frá Mexíkó. Þess vegna var að sjálfsögðu farið á mexíkanskan veitingastað í gærkvöldi. Ég var ekki búinn að borða neitt og leitaði því að einhverju ágætu á matseðlinum. Að sjálfsögðu voru nachos og taco og allt þetta dót sem fæst líka á Íslandi en það sem heillaði mig mest var þessi dýrindis argentínska nautalundarsteik með kryddsmjöri og frönskum. Mjög góð steik, og kostaði nú ekki svo mikið, samkvæmt matseðlinum 15 evrur (1500 kr).
Í miðri veislu segir annar Íslendingurinn við mig: “Ásgeir, sjáðu þessa, væriru ekki til í hana?” og ég segi “Hún er nú ágæt, en hugur minn liggur heim til Íslands”. Þá segir hann “Já, er það þessi Elísabet?” og ég segi bara “WTF? Nei.. hvað..?”. Þá eru þeir bara búnir að googla mig. Fundu bloggið, myndasíðuna, myspaceið og facebookið og búnir að skoða þetta allt. Já, ég á semsagt mína eigin stalkera
Áður en ég held heim ætlaði ég að borga reikninginn minn og tala við þjóninn. Annaðhvort er hann eitthvað vitlaus í hausnum eða svona hrifinn af mér að hann gaf mér góðann afslátt. Hann allavegana tók upp skrifblogg og spurði hvað ég hefði fengið mér. Ég byrja að telja upp Steik (15 evrur) og kók með (2,5 evrur), svo fjórir bjórar (3,20 evrur stykkið eða 12,80 saman)(ég drakk þetta ekki allt einn, lánaði vini mínum) og svo eitt skot (3 evrur). Svo segir þjónninn einhverja tölu en ég næ ekki alveg hvað hann segir. Ég held á 50 evru seðli, tveimur 20 og einum 5 evru og rétti honum bara. Hann tekur einn tuttugu evru og einn fimm evru seðil og svo bara tschüss og takk fyrir komuna
Þarna fékk ég semsagt dýrindis steik og drykki fyrir 2500 krónur, veit ekki alveg hvað þjónninn var að hugsa
Þegar ég mæti í skólann í morgun er ein bekkjarsystir mín frá Brasilíu eitthvað að fikta í öðrum skónum sínum, svo lítur hún upp og heilsar og spyr mig hvort ég sé nokkuð með “Durex”? Ég verð dálítið undrandi en spyr svo til baka “Condom??” og skil ekki alveg hvað hún er að meina. Hún skilur ekki heldur neitt í neinu og eftir smá samræður kemur í ljós að smokkavörumerkið Durex er ekki voðalega þekkt í Brasilíu en það er hinsvegar vinsæl tegund af límbandi sem heitir Durex hjá henni
Hana vantaði semsagt bara límband því það var eitthvað að pirra hana í skónnum, en þetta kom okkur mjög á óvart
Er að horfa á Mr. Bean þegar þetta er skrifað, á þýsku náttúrulega eins og allt annað, og er að velta því fyrir mér hvort að öll óhljóðin í honum hafi líka verið dubbuð af kallinum sem segir fyrir hann línurnar á þýsku :/ ég er nefninlega ekki alveg viss. Var líka að velta þessu fyrir mér með Kenny í Southpark um daginn..
Búinn að fatta hverju ég gleymdi! 23. febrúar, 2008
Posted by Ásgeir in Daglegt líf, Þýskaland.1 comment so far
Þegar maður fer í lengri ferðir að heiman þá gleymir maður að sjálfsögðu alltaf einhverju. Ég hef hingað til ekki fundið neitt sem mig vantaði sérstaklega, nema kanski mömmu, en hún gat víst ekki komið með í þetta skiptið. En í dag fattaði ég hverju ég gleymdi heima á klakanum. STUTTBUXUM OG SÓLARVÖRN! Já, ég skrapp í túristaferð til Lindau, lítill bær við Bodensee vatnið syðst í Þýskalandi. Þar sér maður alveg yfir til Austurríkis og Sviss hinu megin við vatnið. Það var svo æðislega gott veður að ég bara setti upp derhúfuna og var á stuttermabolnum að kafna úr hita. Reyndar voru skólafélagarnir (sem af einhverjum undarlegum ástæðum eru að stórum hluta frá há-hitalöndum (Brasilíu, Mexíkó, Kólumbíu, Túnis, Grikklandi og Kamerún t.d.)) flestir í peysum og jafnvel sumir í úlpum utanyfir og leið bara þokkalega. Kennarinn var svo að segja í gær að spáin fyrir morgundaginn væri 16°C og sól.
Ég skal reyna að hugsa um ykkur heima í rigningunni og sullinu á meðan ég ligg léttklæddur að lesa í bók með ís í hinni í Englisher Garten
Hey, ef einhverjum var ekki búið að detta það í hug þá er ég hörmulegur dansari. Allavegana var ég dreginn á einhvern Suður-Amerískann stað í gærkvöldi og þessar mjaðmahreyfingar eru bara ekki eitthvað fyrir stirðann Íslendinginn, kanski ég reyni bara að kenna þeim gömlu dansana?
Það er miklu meira af táknmáls-tölurum hérna en heima. Þeir svona ferðast í hópum bara. Til dæmis var áðan að koma inn stór hópur af svona fólki hérna inná hótel og það er alveghreint magnað að sjá stórann hóp af fólki og heyrist ekki múkk í þeim
Ég held ég sé farinn að gleyma íslenskunni aðeins. Allavegana þegar ég er að skrifa á msn er ég farinn að sletta aðeins á þýsku. Dáldið leiðinlegt fyrir þá sem ekki hana skilja, því þá þarf ég alltaf að útskýra..
Ps. Gott ráð til að gera afgreiðslufólk pirrað: Ég fór á McDonalds um daginn og átti að borga 4,90 Evrur og rétti konunni 50 evru seðil og svo 90 sent í endalausri smámynt
Svipurinn á henni var mjög grimmur þegar hún sá þetta en ég hló bara að henni
Allir að vera stoltir af mér, takk! 18. febrúar, 2008
Posted by Ásgeir in Daglegt líf, Þýskaland.11 comments
Mér, Ásgeiri Björnssyni, tókst að þvo fötin mín í þvottavél án nokkurrar líkamlegrar aðstoðar. Eina sem ég þurfti var að ég spurði konuna í afgreiðslunni hvernig þetta virkaði, fór síðan niðrí þvottahús og skoðaði og las leiðbeiningarnar einu sinni, prófaði líka hvernig það virkaði að kaupa þvottaefni. Eftir það fór ég upp í herbergi og skoðaði öll skítugu fötin, hvað mátti þvo á hvaða hita og svoleiðis. Fór síðan í tölvuna og googlaði þvottamerkin sem ég skildi ekki. Átti síðan langt og gott símtal við mömmu um hvernig væri best að gera þetta og skipulagði tvo þvottapakka, annann á 30° og hinn á 40°. Fór síðan með þvottinn niðrí þvottahús og las leiðbeiningarnar með vélinni á ensku og þýsku 1-2 sinnum og svo lét ég bara vaða
Núna er risastór þvottasnúra þvert yfir herbergið mitt. Það er eins gott ég hreyfi mig ekki mikið í nótt því hún liggur einmitt beint yfir rúminu mínu, en ég passaði að hafa litlu fötin yfir rúminu svo þetta danglaði ekkert voðalega mikið í andlitið á mér.
Svo þetta tókst mér, karlmanninum sjálfum
Núna vil ég fá klapp á bakið, þ.e. bara svona elektrónískt klapp á bakið, því þið eruð nú ekki alveg með svo langar hendur að ná hingað til mín.
En að öðru. Í gær fór ég á C-B-R. Ég man ekki alveg hvað þetta heitir á íslensku, en þetta heitir Erlebnismesse á þýsku og Messe þýðist fair á ensku. Þetta var svona endalaust mikið af kynningarbásum frá um 1500 mismunandi fyrirtækjum að kynna ýmislegt sem varðar útivist. Var samt ekkert svo allt of mikið af svona minni tegund af útivist, en það var ýmislegt áhugavert þarna. Til dæmis sá ég pínulítinn Fiat með svona tjald á þakinu sem var fest við toppgrindina, alveg hreint magnað og ég þarf eiginlega að fá mér svoleiðis á Yarisinn.
Disney kastalinn heimsóttur 17. febrúar, 2008
Posted by Ásgeir in Þýskaland.5 comments
Í gær fór ég í mjög langa ferð til Füssen, sem er lítill bær hérna í nágrenni Münchenar. Þegar ég segi í nágrenni er það á þýskum mælikvarða, því að lestarferðin tók tvo tíma. Það er nú næstumþví bara hinu megin á landinu á íslenskan mælikvarða. Soldið fyndið, þó ég skjóti því inní, að ein í skólanum mínum spurði mig hvort ég ætti heima nálægt miðbæ Reykjavíkur. Þá svaraði ég henni einfaldlega þannig að ég gæti ekki mögulega átt heima lengra frá miðbænum en samt innan Reykjavíkur, en samt væri ég bara korter með bíl niðrí miðbæ. Þessi stelpa er sko frá Seattle í USA, svo korter í bíl niðrí miðbæ er eiginlega bara inní miðbænum hjá henni.. En allavegana, þá fórum við í gær til Füssen að skoða kastala. Þar eru tveir kastalar, annar heitir Hohenschwangau og var byggður af konungnum Maximillian (held þetta sé skrifað svona). Þetta var ágætlega fínn kastali, en hann er þessi guli á myndunum. Síðan tókum við hestvagn upp í Neuschwanstein kastalann, en það er kastalinn sem Disney-kastalinn frægi er byggður á. Þessi var byggður af Lúðvíki konungi, syni Maximillians. Reyndar er hann ekki fullkláraður, hvorki að innan né utan, því Lúðvík dó á dularfullan hátt aðeins um fertugur og þá var hann farinn að skulda svo mikið við það að byggja þrjá nýja draumakastala að allri vinnu við þá var hætt á stundinni. Aðeins sex vikum eftir að konungurinn dó var þessum kastala breytt í safn, til að afla tekja fyrir skuldunum, giska ég á. Mér fannst Neuschwanstein miklu flottari en sá fyrri, enda lögðu margir handverksmenn 17 ára vinnu í hann, en eins og ég sagði er margt eftir. Það mátti því miður ekki taka myndir inni, en ég setti inn myndir sem ég tók í bænum og utanfrá. Var líka að setja inn myndir frá Dachau fangabúðunum.
Myndirnar:
Dachau fangabúðirnar
Neuschwanstein og Hohenschwangau
Ps. Svo setti ég líka inn tvær myndir úr miðbænum í Misc möppuna. Ég og vinkona mín klifruðum 297 tröppur upp 92 metra háan kirkjuturn til að fá gott útsýni yfir það sem var fyrir neðan.
Dachau og Neuscwanstein 15. febrúar, 2008
Posted by Ásgeir in Þýskaland.Tags: útrýmingarbúðir, Dachau, myndir, Neuschwanstein
add a comment
Jæja, tíminn er farinn að líða hraðar. Búinn að vera hérna í hálfan mánuð, en finnst það ekki hafa verið svo langur tími. Vika tvö defenately styttri en vika eitt.. Í dag fór ég til Dachau með skólanum. Dachau er lítill (40 þús. manna) bær hérna rétt hjá (20 mínútur með lest), svona á stór-Münchenar svæðinu. Þar voru fyrstu fangabúðir nasista í seinni heimstyrjöldinni settar upp, reyndar fyrir styrjöldina sjálfa, til þess að hýsa aðallega gyðinga, en einnig aðra þá sem mæltu eða gerðu eitthvað gegn upprisu nasismans, stjórnmálamenn, rithöfundar, Vottar Jehóva, samkynhneigðir og margir aðrir “óæskilegir” ríkinu. Samtals fóru þar í gegn um 200.000 manns frá 30 mismunandi löngum og létust um 26.000 á tímabilinu 1933-1945, þar af um 15.000 á síðasta árinu fyrir fall nasismans. Búðirnar voru prótótýpa fyrir aðrar fangabúðir nasista og voru hannaðar fyrir 6.000 fanga en undir lokin hýstu þær hátt í 32.000 manns. Á staðnum var meðal annars gasklefi dulbúinn sem sturtuklefi, en hann var lítið eða ekkert notaður. Flestir dóu úr sjúkdómum enda gengu faraldrarnir þar yfir, en einnig nokkrir þegar þeir reyndu að flýja búðirnar og voru skotnir á staðnum við að reyna að komast í gegnum þrefaldan varnarvegginn. Margir sem voru orðnir lífsleiðir og þreyttir á þessu ástandi fóru þó sjálfviljugir á milli veggjanna til þess eins að láta skjóta sig.
Yfir hliðinu, því eina sem var inn í svæðið á þessum tíma, stóðu orðin “Arbeit macht frei”, sem útfærist Vinnan færir frelsið, og var þessi setning á hliðunum að öllum fanga- (útrýmingar) búðum nasista.
Þegar að búðirnar voru upprættar þann 29. apríl 1945 af Bandaríkjamönnum fundu þeir um 1600 manns í hverju húsi af þeim 32 húsum sem voru fyrir fanga. Hvert hús var hannað og byggt fyrir 250 manns. Einnig fundu þeir síðustu lestina sem hafði komið með fanga í búðirnar þann 27. apríl, en í hverjum vagni voru um 100 lík. Af þeim 4500-4800 sem komu með henni voru aðeins 800 manns sem komust lifandi inn í búðirnar. Aðastæðurnar sem bandamenn komu að voru svo hrikalegar að þeir skutu nokkra verði þrátt fyrir að þeir hefðu gefist upp.
Eftir þetta voru þær enn að einhverju leiti notaðar sem fangabúðir fyrir pólitíska fanga úr stríðinu í nokkur ár, en síðan voru húsin rifin vegna þess hve lélegur aðbúnaður var þarna. Tvö fangahúsanna hafa síðan verið endurbyggð til minningar um þetta, ásamt hluta af girðingunni umhverfis og aðalbyggingunni sem innihélt eldhúsið, skrifstofur og ýmislegt fleira.
Þessi saga er miklu lengri og þó við værum bara þarna í klukkutíma í dag þurfti maður eiginlega að hlaupa í gegn til að sjá þetta allt. Hefði getað verið þarna í 2-3 tíma að lesa allan textann á þeim fjölmörgu upplýsingaskiltum og á safninu sem er þarna.
Ég tók einhvern slatta af myndum en ætla að reyna að setja þær inn á morgun
Svo á morgun er ég að fara í Neuschwanstein kastalann, en það er kastalinn sem Disney-kastalinn frægi er byggður á. Öll póstkortin og myndirnar sem ég hef séð af honum eru eins og í ævintýri, næstumþví eins og þetta sé allt teiknað. Ætli það komi þá ekki myndir af því líka annað kvöld
Fleiri góðar (þýddar) pælingar af netinu, og ein frá mér 12. febrúar, 2008
Posted by Ásgeir in Vitleysa.Tags: þjóðverjar, pælingar
7 comments
- Af hverju rukka bankar gjöld fyrir það þegar þú átt ekki nægan pening inná bókinni fyrir næstu færslu?
- Af hverju talar fólk um að hafa sofið eins og ungabarn, þegar þau vakna á tveggja tíma fresti?
- Hvernig komum við manninum á tunglið áður en við föttuðum að setja hjólið á ferðatöskur?
- Af hverju borgar fólk sérstaklega fyrir að fara upp í háar byggingar og borgar svo ennþá meira fyrir að horfa í gegnum kíki á hluti á jörðinni fyrir neðan..?
- Hver ætli hafi verið fyrsti maðurinn sem horfði á belju og hugsaði “ég ætla að kreysta þetta bleika þarna og drekka það sem kemur út úr því”
- Ætli það hafi verið sami maðurinn og sagði: “sjáiði þessa hænu þarna… ég ætla að borða það næsta sem kemur út úr rassgatinu á henni”
- Af hverju hafa ristavélar alltaf svo háa stillingu að maður geti brennt brauðið í kolamola sem engin venjuleg manneskja myndi borða?
- Af hverju er ljós í ísskápnum en ekki í frystinum?
- Hvers vegna bendir fólk á úlnliðinn þegar það spyr um tímann en ekki á rassinn þegar það spyr um klósettið?
- Af hverju stendur Guffi uppréttur og talar en Plútó er á fjórum fótum og geltir, fyrst þeir eru báðir hundar?
- Ef maður ýtir oftar en einu sinni á lyftuhnappinn, kemur hún þá hraðar?
EN, svo er önnur pæling sem er frá mér og nokkrum í skólanum (og reyndar mörgum öðrum):
Af hverju raða Þjóðverjar og Danir tugum og einingum í vitlausa röð? Tökum sem dæmi töluna 123. Á íslensku er hún eitthundrað tuttugu og þrír, á ensku hundred twenty three, en svo á þýsku segir maður einhundert drei und zwanzig (semsagt eitthundrað þrír og tuttugu) og á dönsku er þessu líka raðað svona, þó ég sé búinn að gleyma allri dönsku meðan ég læri þýskuna.. Alveg hrikalega að fara með mig hérna!
Ich liebe mathematik 11. febrúar, 2008
Posted by Ásgeir in Þýskaland.Tags: BMW, götunöfn, myndir, póstkort, Subway
5 comments
Komnar inn einhverjar fleiri myndir frá BMW heiminum. Vissu þið að BMW stendur fyrir Bayerische Motoren Werke?
Það má einhver heima gera mér virkilega stóran greiða. Han felur í sér að fara á Subway og spyrja hvað Ostasósan heitir á ensku..? Nema að sjálfsögðu að einhver viti það og geti sagt mér.. Bara búinn að borða eitthvað frekar óhuggulegt léttmæjónes þessi tvö skipti sem ég hef fengið mér bát. Var reyndar að opna nýr subway-staður alveg við hliðiná skólanum, svo það er auðvelt að fá sér að borða í hádeginu. Ekki það hafi verið eitthvað erfitt fyrir með aðallestarstöðina hinu megin við götuna.
Póstkortin eru á leiðini. Setti slatta í póst í dag. Reyndar með sitthvoru póstfyrirtækinu, svo það er gaman að sjá hvort er á undan
Giska samt frekar á það sem ég fór með beint á pósthúsið en það sem fór í kassann fyrir utan hótelið. Ef þú færð ekki póstkort er það mjög sennilega útaf því póstþjónustan klúðraði því, ekki það að ég hafi ekki sent þér svoleiðis..
Nokkur skemtileg götu- og stoppistöðvaheiti hérna:
Stoppistöðin mín hjá hótelinu heitir Marsstraße, eða Marsstræti.
Ein stoppistöðin á leiðinni niðrí bæ heitir Hopfenstraße, sem hlýtur að útfærast Vonarstræti.
Önnur gata rétt hjá skólanum heitir Pfefferstraße, eða Piparstræti.
Ég þarf að fá mér svona klukku:

Bæ the way, þá fann ég búð í stærsta mollinu hérna sem selur Binary-úr
bæði eins og ég á og aðrar týpur..
Fleiri myndir 9. febrúar, 2008
Posted by Ásgeir in Þýskaland.Tags: BMW, moll, myndir
1 comment so far
komnar. Mér tókst að logga mig aftur inn á Flickr síðuna mína, svo ég nota google dæmið ekki lengur (enda óendanlega lítið pláss þar). Ég fór og skoðaði AllianzArena, heimavöll Bayern München fótboltaliðsins í gær. Síðan var partý í gærkvöldi afþví að þrír úr bekknum voru að hætta í skólanum. Fórum á einhvern portúgalskan bar og þar var drukkið og síðan fóru einhverjir á dansibúllu eftir það. Ég komst að því að þýskur bjór er í alvörunni betri en nokkur annar. Allavegana er Weisbier (þýskur “hvítbjór”) miklu betri en það sem ég hef smakkað heima. Já mamma og pabbi, ég er þá semsagt byrjaður að drekka
Drakk samt bara þrjá bjóra í gær, en allir vilja meina að ég hafi verið mjög fullur.. Ég var bara að skemmta mér vel
Síðan í dag fór ég í Olympia-Einkauf-Zentrum. Stærsta verslanamiðstöðin í pleisinu, en mestallt einhverjar kellingabúðir. Kíktum reyndar aðeins í BMW-heiminn á leiðinni, svo ég náði að taka myndir þaðan fyrst ég gleymdi myndavélinni þegar ég fór þangað í heimsókn á miðvikudaginn. Set þessar myndir inn seinna.
Hinar myndirnar eru allavegna hérna:
Allianz Arena: http://www.flickr.com/photos/asgbjo/tags/allianzarena/
Karnivalið um daginn: http://www.flickr.com/photos/asgbjo/tags/karnival/
Aðrar myndir: http://www.flickr.com/photos/asgbjo/tags/misc/
Undir aðrar myndir má finna tvær nokkuð fyndar. Annars vegar var einhver klifrari á boxinu mínu frá McDonalds og hins vegar fann ég FyrstuHjálparSjálfsala í aðallestarstöðinn, nánar um hann með myndinni.
Sparnaðartilraunir 5. febrúar, 2008
Posted by Ásgeir in Þýskaland.Tags: myndir, sparnaður
9 comments
Búinn að gera nokkrar tilraunir til að spara smá peninga. Þær hafa gengið mjög mismunandi vel, en hérna eru þær:
- Ísskápur á svölunum!
Hugmyndin er sú að ég geti keypt mér stærri umbúðir af drykkjum og einhverju snarli, t.d. ávöxtum og geymt það úti á svölum í kuldanum svo það dugi lengur, og gott að eiga eitthvað kalt að drekka. Þetta hefur gengið mjög vel, hitastigið úti er nokkrum gráðum yfir frostmarki í skugganum. Búinn að prófa eina vatnsflösku og hún virkaði mjög vel, alltaf köld, og ég var að setja eina kókflösku út. - Geyma matinn sem ég borða ekki!
Hugmyndin var að ef ég kaupi mér skyndibita og klára hann ekki allan, þá taki ég afganginn með mér heim og borði hann síðar þegar ég verð svangur. Hefur gengið misvel, reyndar einungis tvisvar prófað. Annarsvegar frönskuskammtur frá Burger King. SKildi hann eftir í pokanum á borðinu í 1-2 klukkutíma og var ógeðslega sveitt og kalt og hart, semsagt óætt, þegar ég ætlaði að borða það. Hinsvegar tók ég með mér kökuna (þessa einu sem ég fékk, ekki tvær eins og heima) af Subway og hún var mjög góð eftir þrjá tíma. - Labba allt!
Miðað við hvað mér er illt í fótunum núna, einungis á fjórða degi, sé ég að þetta hefði ekki gengið sérstaklega vel.. Var áðan að kaupa mér mánaðarkort í strætó, Tramið og lestirnar (bæði S-bahn og U-bahn), semsagt allar mögulegar almenningssamgöngur, á 3800 krónur, styttir ferðatímann í skólann á morgnana úr 20 mínútna labbi í 5 mínútna Tram-ferð. - Þýskt símanúmer!
Á reyndar eftir að framkvæma þetta. Með íslenska SKO-kortið kostar semsagt 90 kr. mínútan að hringja heim og 40 kr. mínútan að taka á móti símtali. Ef ég fæ mér þýskt símanúmer þá held ég að ég geti hringt heim fyrir allt niður í 9 cent (9 kr) á mínútuna og borga ekkert fyrir að móttaka símtal (sem eru mestu þægindin)
Myndir komnar inná Flickr síðuna mína (Man ekki passwordið á Flick, svo ég setti þessar myndir inn á picasaweb hjá google – linkurinn er hér)! Frá karnivalinu í dag, fórum þangað eftir skóla, en ætli ég fari ekki aftur niðureftir á eftir og taki fleiri myndir. Margir skemmtilegir búningar til að skoða
Það er semsagt frí eftir hádegi á flestum vinnustöðum, svo það er fullt af fólki niðrí bæ, miklu flottara en litli öskudagurinn okkar
