DAGUR 2 3. febrúar, 2008
Posted by Ásgeir in Þýskaland.Tags: útlönd, grjóni, karnival, lest, sjónvarp, Subway
trackback
Vá hvað það er gaman að segja þetta
ævintýrið loksins byrjað. Ég skiptist á að vera hræddur og pæla hvern andskotan ég var að hætta mér útí svona langt frá mömmu og pabba og að vera rosalega spenntur yfir því að sjá allt þetta nýja og kynnast annarri menningu. Það er semsagt örlítill vottur af heimþrá, en ég reyni að traðka ofaná henni, gefum þessu svona viku
Ferðin hófst í gærmorgun þegar mamma og pabbi skutluðu mér útá Keflavíkurflugvöll. Mælirinn í bílnum sýndi -18°C þegar við löggðum af stað :S. Þar tók við flug til Danmerkur þar sem bróðir minn, Aldís og Eyrún Lára litla frænka tóku við mér. Þau voru að fá sér nýja íbúð, þar sem þau meiga víst ekki hafa barn á gamla kollegíinu fara þau á annað kollegí. Við fórum í gömlu íbúðina og svo skildu þau mig eftir að passa barnið (sem grenjaði eiginlega bara mestallan tímann, nema þegar hún sofnaði í svona 10 mínútur) á meðan þau fóru í málningabúðina. Síðan fórum við í nýju íbúðina og við Grjóni fórum að teipa meðfram öllum veggjum og gluggum afþví það þarf að mála íbúðina áður en þau flytja þangað. Á leiðinni aftur heim komum við við á Pizza Hut og fengum okkur að éta. Vorum síðan komin heim um 10 leitið og öll frekar þreytt. Ég laggðist bara upp í rúm og horfði á hálfan CSI-upprunalega þátt, hafði reyndar séð hann áður, svakalega eru þessir danir eftirá
Vaknaði svo kl 8 í morgun og Grjóni skuttlaði mér útá flugvöll. Óvenjulegt að fara á Kastrup og vera ekki á leiðinni heim til gamla góða Íslands. Það var líka einnig mjög óvenjulegt að fara í svona stutt flug, ekki nema 1,5 klst. Þegar ég kom til Þýskalands þá var bara allt á þýsku og átti ég bágt með að skilja skiltin. Fann þó leiðina út á endanum (voru jú ekki skiltin á ensku líka). Fann svo einhverja mannaða miðasölu fyrir lestina, en þá voru bara allir básarnir lokaðir.. Þegar ég á endanum rataði niðrá lestarstöðina gekk ég að sjálfsalanum og þá var í alvörunni bara allt á þýsku. Þá hætti ég nú alveg að skilja þessa þjóðverja. Hinu megin við þessa sjálfsala voru aðrir sjálfsalar og þar fann ég eitthvað á ensku. Reyndi að kaupa miða og troða 20 evru seðli í vélina en hún spýtti alltaf seðlinum út aftur. Búinn að reyna þrisvar þegar einhver maður kemur og bendir mér á að hún taki ekki 50 og 20 evru seðla fyrir lægri upphæðir (átti að borga 8,80). Þá labba ég aftur útaf lestarstöðinni og inn í einhverja búð og fæ að skipta. Þegar ég loksins er kominn með miða og lestin kemur er ég orðinn mjög ruglaður og því gott að fá að setjast bara niður og bíða í 40 mínútur á meðan lestin fer með mig á áfangastað.
Ég var ekki sá eini sem átti í vandræðum með þessar lestar því maðurinn sem sat hinu megin við ganginn var alltaf að kíkja á eitthvað útprentað kort sem hann var með, stendur svo upp og spyr hvaða lest hann sé eiginlega í, því hann finni ekki lestarstöðina sem lestin hafði nýlega stoppað við á kortinu. Ég segi honum ég haldi að stöðin hafi bara verið út fyrir kortið og bendi honum á stærra lestarkort sem hangir fyrir ofan hurðina. Þá kom þetta allt í ljós að ég hafði rétt fyrir mér
Svona er maður (stundum) fljótur að læra.
Loksins er ég kominn á lestarstöðina sem ég á að fara út á og labba út. Var bara á peysunni en reyndar með stóra tösku á bakinnu, en mér var bara mjög heitt, svo gott veður hérna
Kem á hótelið/hostelið (veit eiginlega ekki alveg hvað á að kalla þetta, svona blanda af báðu) og fer að skrá mig inn. Þegar stelpan í afgreiðslunni fann mig í tölvunni hennar segir hún “Já, þú ert þessi sem verður 55 nætur”. Gleymdi nú að spyrja að því en er það eitthvað voða óvenjulegt?
Fínasta herbergi sem ég er í, ágætis útsýni af svölunum mínum yfir götuna og húsið á móti. Sá á leiðinni hingað að það er Subway svona 200 metra héðan
Þar er enginn bátur mánaðarinns heldur bátur dagsins, semsagt alltaf sami báturinn á laugardögum, sami á sunnudögum o.s.frv.
Eftir að hafa komið mér þokkalega fyrir rölti ég niðrí bæ. Þar er víst eitthvað svaka karnival í gangi. Fullt af fólki í skrítnum fötum röltandi um að skoða fullt af sölubásum og allskonar skemmtiatriði á mörgum sviðum frá Hauptbahnhof (aðallestarstöðinni) yfir á Marienplatz (miðja miðbæjarinns, svona nokkurskonar Ingólfstorg). Ég röllti um og þetta var mjög skemmtilegt, fullt af skemmtilegri tónlist, dansatriði og undarlegu fólki. Smakkaði meiraðsegja súkkulaðihúðaðan banana, hann var mjög góður
Núna er ég kominn aftur heim og er bara að slappa af, fara í sturtu og horfa á sjónvarpið. Það eru 1,5 stöðvar á ensku
CNN er öll á ensku, en ég sá einhvern þátt í dag á MTV sem var enskur, en núna eru þættir sem er búið að tala yfir á þýsku. Hinar 29 stöðvarnar eru allar á þýsku.
Er núna á netinu niðrí lobbíi. Get þar komist inná þráðlaust net, kostar eina evru (95 kr) klukkutíminn, en jæja, þá er að finna sér eitthvað að gera svo maður hugsi ekki alltof mikið heim

Það er gott að allt gekk vel hjá þér
Þú verður að vera duglegur að taka myndir og setja á netið.. Og mundu að senda mér póstkort, á þýsku
Sæll
. Þýskur handbolti er víst einn besti í heimi. Svo er bara að finna sér myndavél og fara að sýna okkur þetta frábæra herbergi sem þú ert á. Haltu svo áfram að blogga drengur! You can do it put your ass into it eins og sagt var hérna um árið
Gaman að heyra að þetta hafi allt gengið vel. Þú finnur þér bara einhverja íþróttarás þarft ekkert að skilja þegar íþróttir eru annars vegar, bara horfa
Velkominn til Þýskalands
Vá hvað lýsingin um að þú skyldir ekki skiltin og með miðana í skiptivélinni hljómar kunnulega, hahahaha.
En það er gott að þú sért kominn og gaman að heyra frá þér í gær, var verulega öfundsjúk
Vonandi kemur LP bókin sér vel fyrir, treysti á að þú eigir eftir að verða ofur túristi með hana.
En hafðu það sem allra best. Sakna þín.
Haha, jámm, hef ekki ennþá þorað að standa á miðri götunni og stara ofaní bókina
En annars hefur hún komið sér vel
Sakna þín líka