jump to navigation

Myndir koma bráðum 4. febrúar, 2008

Posted by Ásgeir in Þýskaland.
Tags: , ,
trackback

Keypti mér myndavél í dag.. Sony DSC-W55. Svona eins og Elva á fyrir ykkur sem hafið séð hana. Var mjög ódýr í einhverri búð sem ég fór í, fékk vélina, 2 GB kort í hana og tösku á ca. 19.000 krónur :) nokkuð gott.  Svo er karnival á morgun, þannig að ég býst við ég taki slatta af myndum þar og sett nokkrar vel valdar inná netið.

Fyrsti skóladagurinn var annars í dag. Byrjaði á einhverju stöðuprófi sem gekk misvel, en komst líka að því að það eru tveir aðrir íslendingar að byrja í þessari viku. Talaði við annan þeirra í kaffiteríunni í dag, 88′ módel frá Akranesi og verða hér í 3 mánuði. Annars kynntist ég nokkrum í bekknum örlítið. Einn strákur frá Brasilíu á sama hóteli og ég, en því miður er þetta síðasta vikan hans hérna.. líkaði ágætlega við hann. Svo var annar ca. 50 ára gamall prófessor frá Venezúela eða einhverju álíka suðurameríkulandi sem bauð mér að koma með öðrum frá Afríku, Chad minnir mig eða eitthvað, útá lestarstöð að borða mína fyrstu Bratwürst í brauði. Mjög góð, mæli með henni :P

Horfði á Pimp my ride á MTV í dag.. það var annaðhvort það eða endalausar fréttaskýringar af forsetaframboðunum í USA.. Alveg frábært úrval af sjónvarpsefni hérna.

Ummæli»

1. ElvaDögg - 4. febrúar, 2008

Magnað :) þetta er besta myndavél í geimi :P

2. Rakel Ósk - 5. febrúar, 2008

Ég þyrfti einmitt að fá mér myndavél, mín dó um helgina. Án djóks :(

Hlakka til að sjá myndirnar