jump to navigation

Sparnaðartilraunir 5. febrúar, 2008

Posted by Ásgeir in Þýskaland.
Tags: ,
trackback

Búinn að gera nokkrar tilraunir til að spara smá peninga. Þær hafa gengið mjög mismunandi vel, en hérna eru þær:

  1. Ísskápur á svölunum!
    Hugmyndin er sú að ég geti keypt mér stærri umbúðir af drykkjum og einhverju snarli, t.d. ávöxtum og geymt það úti á svölum í kuldanum svo það dugi lengur, og gott að eiga eitthvað kalt að drekka. Þetta hefur gengið mjög vel, hitastigið úti er nokkrum gráðum yfir frostmarki í skugganum. Búinn að prófa eina vatnsflösku og hún virkaði mjög vel, alltaf köld, og ég var að setja eina kókflösku út.
  2. Geyma matinn sem ég borða ekki!
    Hugmyndin var að ef ég kaupi mér skyndibita og klára hann ekki allan, þá taki ég afganginn með mér heim og borði hann síðar þegar ég verð svangur. Hefur gengið misvel, reyndar einungis tvisvar prófað. Annarsvegar frönskuskammtur frá Burger King. SKildi hann eftir í pokanum á borðinu í 1-2 klukkutíma og var ógeðslega sveitt og kalt og hart, semsagt óætt, þegar ég ætlaði að borða það. Hinsvegar tók ég með mér kökuna (þessa einu sem ég fékk, ekki tvær eins og heima) af Subway og hún var mjög góð eftir þrjá tíma.
  3. Labba allt!
    Miðað við hvað mér er illt í fótunum núna, einungis á fjórða degi, sé ég að þetta hefði ekki gengið sérstaklega vel.. Var áðan að kaupa mér mánaðarkort í strætó, Tramið og lestirnar (bæði S-bahn og U-bahn), semsagt allar mögulegar almenningssamgöngur, á 3800 krónur, styttir ferðatímann í skólann á morgnana úr 20 mínútna labbi í 5 mínútna Tram-ferð.
  4. Þýskt símanúmer!
    Á reyndar eftir að framkvæma þetta. Með íslenska SKO-kortið kostar semsagt 90 kr. mínútan að hringja heim og 40 kr. mínútan að taka á móti símtali. Ef ég fæ mér þýskt símanúmer þá held ég að ég geti hringt heim fyrir allt niður í 9 cent (9 kr) á mínútuna og borga ekkert fyrir að móttaka símtal (sem eru mestu þægindin)

Myndir komnar inná Flickr síðuna mína (Man ekki passwordið á Flick, svo ég setti þessar myndir inn á picasaweb hjá google – linkurinn er hér)! Frá karnivalinu í dag, fórum þangað eftir skóla, en ætli ég fari ekki aftur niðureftir á eftir og taki fleiri myndir. Margir skemmtilegir búningar til að skoða :) Það er semsagt frí eftir hádegi á flestum vinnustöðum, svo það er fullt af fólki niðrí bæ, miklu flottara en litli öskudagurinn okkar

Ummæli»

1. Valtýr - 5. febrúar, 2008

Vá þetta er að ganga illa að commenta hérna. Gangi þér vel í Þýskalandi, ég er nýkominn frá Berlín og horfi á karnevalinn í Köln á ARD alla vikuna til kl. 23. Vertu bara duglegur að læra þýskuna hehe Góða skemmtun á karneval. Vertu duglegur að blogga og setja inn myndir.

YiS
valli

2. Rakel Ósk - 6. febrúar, 2008

Ég dáist af þessum sparnaðartilraunum þínum

3. dresinn - 8. febrúar, 2008

vá geðveigt þetta virkar pottþétt ekki á íslandi en þú ert að missa af geðveikum snjó

4. Ásgeir - 8. febrúar, 2008

Já, búinn að frétta af öllum þessum snjó hjá ykkur.. Er bara að kafna úr hita (sirka 5-10°C úti) en fólkið frá Brasilíu, Kólumbíu, Venezúela og Kamerún er að frjósa :P

5. Baldur Árnason - 9. febrúar, 2008

Hvað með myndir af herberginu og skólanum?

6. Ásgeir - 9. febrúar, 2008

Já, myndir af því koma bráðlega, held ég hafi tekið eina mynd af herberginu mínu, en ég skal taka fleiri og líka af skólanum..

7. Rakel Ósk - 11. febrúar, 2008

Ég er samt ekki frá því að þú sért orðinn algjör Þjóðverji sem samanstendur af nísku.

Það er kannski bara hið besta mál

8. Smári - 14. febrúar, 2008

Hey varðandi símann, fáðu þér VOIP Buster og notaðu það til að hringja heim, kostar skuggalega lítið.

9. Asgeir - 14. febrúar, 2008

Ja, var ad skoda Skype og thad kostar 3 kronur a minutuna ad hringja heim i fastalinusima.. Samt einhver 25 kronur i gsm