Fleiri myndir 9. febrúar, 2008
Posted by Ásgeir in Þýskaland.Tags: BMW, moll, myndir
trackback
komnar. Mér tókst að logga mig aftur inn á Flickr síðuna mína, svo ég nota google dæmið ekki lengur (enda óendanlega lítið pláss þar). Ég fór og skoðaði AllianzArena, heimavöll Bayern München fótboltaliðsins í gær. Síðan var partý í gærkvöldi afþví að þrír úr bekknum voru að hætta í skólanum. Fórum á einhvern portúgalskan bar og þar var drukkið og síðan fóru einhverjir á dansibúllu eftir það. Ég komst að því að þýskur bjór er í alvörunni betri en nokkur annar. Allavegana er Weisbier (þýskur “hvítbjór”) miklu betri en það sem ég hef smakkað heima. Já mamma og pabbi, ég er þá semsagt byrjaður að drekka
Drakk samt bara þrjá bjóra í gær, en allir vilja meina að ég hafi verið mjög fullur.. Ég var bara að skemmta mér vel
Síðan í dag fór ég í Olympia-Einkauf-Zentrum. Stærsta verslanamiðstöðin í pleisinu, en mestallt einhverjar kellingabúðir. Kíktum reyndar aðeins í BMW-heiminn á leiðinni, svo ég náði að taka myndir þaðan fyrst ég gleymdi myndavélinni þegar ég fór þangað í heimsókn á miðvikudaginn. Set þessar myndir inn seinna.
Hinar myndirnar eru allavegna hérna:
Allianz Arena: http://www.flickr.com/photos/asgbjo/tags/allianzarena/
Karnivalið um daginn: http://www.flickr.com/photos/asgbjo/tags/karnival/
Aðrar myndir: http://www.flickr.com/photos/asgbjo/tags/misc/
Undir aðrar myndir má finna tvær nokkuð fyndar. Annars vegar var einhver klifrari á boxinu mínu frá McDonalds og hins vegar fann ég FyrstuHjálparSjálfsala í aðallestarstöðinn, nánar um hann með myndinni.

Skemmtilegar myndir
ég held samt að mér sé ekki ætlað að tala við þig þar sem ég er búin að vera að reyna að hringja í þig í allan dag og annað hvort er á tali eða það næst ekki í símann.. Er ég kannski ekki með rétt númer? :/