Dachau og Neuscwanstein 15. febrúar, 2008
Posted by Ásgeir in Þýskaland.Tags: útrýmingarbúðir, Dachau, myndir, Neuschwanstein
trackback
Jæja, tíminn er farinn að líða hraðar. Búinn að vera hérna í hálfan mánuð, en finnst það ekki hafa verið svo langur tími. Vika tvö defenately styttri en vika eitt.. Í dag fór ég til Dachau með skólanum. Dachau er lítill (40 þús. manna) bær hérna rétt hjá (20 mínútur með lest), svona á stór-Münchenar svæðinu. Þar voru fyrstu fangabúðir nasista í seinni heimstyrjöldinni settar upp, reyndar fyrir styrjöldina sjálfa, til þess að hýsa aðallega gyðinga, en einnig aðra þá sem mæltu eða gerðu eitthvað gegn upprisu nasismans, stjórnmálamenn, rithöfundar, Vottar Jehóva, samkynhneigðir og margir aðrir “óæskilegir” ríkinu. Samtals fóru þar í gegn um 200.000 manns frá 30 mismunandi löngum og létust um 26.000 á tímabilinu 1933-1945, þar af um 15.000 á síðasta árinu fyrir fall nasismans. Búðirnar voru prótótýpa fyrir aðrar fangabúðir nasista og voru hannaðar fyrir 6.000 fanga en undir lokin hýstu þær hátt í 32.000 manns. Á staðnum var meðal annars gasklefi dulbúinn sem sturtuklefi, en hann var lítið eða ekkert notaður. Flestir dóu úr sjúkdómum enda gengu faraldrarnir þar yfir, en einnig nokkrir þegar þeir reyndu að flýja búðirnar og voru skotnir á staðnum við að reyna að komast í gegnum þrefaldan varnarvegginn. Margir sem voru orðnir lífsleiðir og þreyttir á þessu ástandi fóru þó sjálfviljugir á milli veggjanna til þess eins að láta skjóta sig.
Yfir hliðinu, því eina sem var inn í svæðið á þessum tíma, stóðu orðin “Arbeit macht frei”, sem útfærist Vinnan færir frelsið, og var þessi setning á hliðunum að öllum fanga- (útrýmingar) búðum nasista.
Þegar að búðirnar voru upprættar þann 29. apríl 1945 af Bandaríkjamönnum fundu þeir um 1600 manns í hverju húsi af þeim 32 húsum sem voru fyrir fanga. Hvert hús var hannað og byggt fyrir 250 manns. Einnig fundu þeir síðustu lestina sem hafði komið með fanga í búðirnar þann 27. apríl, en í hverjum vagni voru um 100 lík. Af þeim 4500-4800 sem komu með henni voru aðeins 800 manns sem komust lifandi inn í búðirnar. Aðastæðurnar sem bandamenn komu að voru svo hrikalegar að þeir skutu nokkra verði þrátt fyrir að þeir hefðu gefist upp.
Eftir þetta voru þær enn að einhverju leiti notaðar sem fangabúðir fyrir pólitíska fanga úr stríðinu í nokkur ár, en síðan voru húsin rifin vegna þess hve lélegur aðbúnaður var þarna. Tvö fangahúsanna hafa síðan verið endurbyggð til minningar um þetta, ásamt hluta af girðingunni umhverfis og aðalbyggingunni sem innihélt eldhúsið, skrifstofur og ýmislegt fleira.
Þessi saga er miklu lengri og þó við værum bara þarna í klukkutíma í dag þurfti maður eiginlega að hlaupa í gegn til að sjá þetta allt. Hefði getað verið þarna í 2-3 tíma að lesa allan textann á þeim fjölmörgu upplýsingaskiltum og á safninu sem er þarna.
Ég tók einhvern slatta af myndum en ætla að reyna að setja þær inn á morgun
Svo á morgun er ég að fara í Neuschwanstein kastalann, en það er kastalinn sem Disney-kastalinn frægi er byggður á. Öll póstkortin og myndirnar sem ég hef séð af honum eru eins og í ævintýri, næstumþví eins og þetta sé allt teiknað. Ætli það komi þá ekki myndir af því líka annað kvöld

Ummæli»
No comments yet — be the first.