Disney kastalinn heimsóttur 17. febrúar, 2008
Posted by Ásgeir in Þýskaland.trackback
Í gær fór ég í mjög langa ferð til Füssen, sem er lítill bær hérna í nágrenni Münchenar. Þegar ég segi í nágrenni er það á þýskum mælikvarða, því að lestarferðin tók tvo tíma. Það er nú næstumþví bara hinu megin á landinu á íslenskan mælikvarða. Soldið fyndið, þó ég skjóti því inní, að ein í skólanum mínum spurði mig hvort ég ætti heima nálægt miðbæ Reykjavíkur. Þá svaraði ég henni einfaldlega þannig að ég gæti ekki mögulega átt heima lengra frá miðbænum en samt innan Reykjavíkur, en samt væri ég bara korter með bíl niðrí miðbæ. Þessi stelpa er sko frá Seattle í USA, svo korter í bíl niðrí miðbæ er eiginlega bara inní miðbænum hjá henni.. En allavegana, þá fórum við í gær til Füssen að skoða kastala. Þar eru tveir kastalar, annar heitir Hohenschwangau og var byggður af konungnum Maximillian (held þetta sé skrifað svona). Þetta var ágætlega fínn kastali, en hann er þessi guli á myndunum. Síðan tókum við hestvagn upp í Neuschwanstein kastalann, en það er kastalinn sem Disney-kastalinn frægi er byggður á. Þessi var byggður af Lúðvíki konungi, syni Maximillians. Reyndar er hann ekki fullkláraður, hvorki að innan né utan, því Lúðvík dó á dularfullan hátt aðeins um fertugur og þá var hann farinn að skulda svo mikið við það að byggja þrjá nýja draumakastala að allri vinnu við þá var hætt á stundinni. Aðeins sex vikum eftir að konungurinn dó var þessum kastala breytt í safn, til að afla tekja fyrir skuldunum, giska ég á. Mér fannst Neuschwanstein miklu flottari en sá fyrri, enda lögðu margir handverksmenn 17 ára vinnu í hann, en eins og ég sagði er margt eftir. Það mátti því miður ekki taka myndir inni, en ég setti inn myndir sem ég tók í bænum og utanfrá. Var líka að setja inn myndir frá Dachau fangabúðunum.
Myndirnar:
Dachau fangabúðirnar
Neuschwanstein og Hohenschwangau
Ps. Svo setti ég líka inn tvær myndir úr miðbænum í Misc möppuna. Ég og vinkona mín klifruðum 297 tröppur upp 92 metra háan kirkjuturn til að fá gott útsýni yfir það sem var fyrir neðan.

Djöfullsins snilld!
Ég skoða þennan kastala þegar ég fer til Þýskalands í vor
Hann er thokkalega flottastur í geimi!
en ég hafði ekki hugmynd að þetta væri disney kastalinn, hahahaha.
ógsla international
hahaha
Haha