Allir að vera stoltir af mér, takk! 18. febrúar, 2008
Posted by Ásgeir in Daglegt líf, Þýskaland.trackback
Mér, Ásgeiri Björnssyni, tókst að þvo fötin mín í þvottavél án nokkurrar líkamlegrar aðstoðar. Eina sem ég þurfti var að ég spurði konuna í afgreiðslunni hvernig þetta virkaði, fór síðan niðrí þvottahús og skoðaði og las leiðbeiningarnar einu sinni, prófaði líka hvernig það virkaði að kaupa þvottaefni. Eftir það fór ég upp í herbergi og skoðaði öll skítugu fötin, hvað mátti þvo á hvaða hita og svoleiðis. Fór síðan í tölvuna og googlaði þvottamerkin sem ég skildi ekki. Átti síðan langt og gott símtal við mömmu um hvernig væri best að gera þetta og skipulagði tvo þvottapakka, annann á 30° og hinn á 40°. Fór síðan með þvottinn niðrí þvottahús og las leiðbeiningarnar með vélinni á ensku og þýsku 1-2 sinnum og svo lét ég bara vaða
Núna er risastór þvottasnúra þvert yfir herbergið mitt. Það er eins gott ég hreyfi mig ekki mikið í nótt því hún liggur einmitt beint yfir rúminu mínu, en ég passaði að hafa litlu fötin yfir rúminu svo þetta danglaði ekkert voðalega mikið í andlitið á mér.
Svo þetta tókst mér, karlmanninum sjálfum
Núna vil ég fá klapp á bakið, þ.e. bara svona elektrónískt klapp á bakið, því þið eruð nú ekki alveg með svo langar hendur að ná hingað til mín.
En að öðru. Í gær fór ég á C-B-R. Ég man ekki alveg hvað þetta heitir á íslensku, en þetta heitir Erlebnismesse á þýsku og Messe þýðist fair á ensku. Þetta var svona endalaust mikið af kynningarbásum frá um 1500 mismunandi fyrirtækjum að kynna ýmislegt sem varðar útivist. Var samt ekkert svo allt of mikið af svona minni tegund af útivist, en það var ýmislegt áhugavert þarna. Til dæmis sá ég pínulítinn Fiat með svona tjald á þakinu sem var fest við toppgrindina, alveg hreint magnað og ég þarf eiginlega að fá mér svoleiðis á Yarisinn.

Hahaha ég er svoo stolt af þér
vá ég hélt að þetta myndi aldrei gerast, alla vena ekki nærrum því strax
Til hamingju með þvottinn hehe.
innilegar hamingjuóskir með þennan árangur
ég er mjög stolt
þú hefur ekkert ákveðið að taka þátt í verkfallinu í Þýskalandi?
http://mbl.is/mm/frettir/erlent/2008/02/19/verkfoll_i_thyskalandi/
Haha,
nei, fyrst ég er ekki að læra þýsku á leikskóla, opinberri skrifstofu eða í sundlaug þá ákvað ég bara að halda áfram að fara í skólann
Ítalir :O
Nákvæmlega! Rakel.. Ítalir..
Viltu taka mynd af svona kisu fyrir mig
?
http://www.b2.is/?sida=tengill&id=275135
Afhverju kemur kommentið ekki
Sendi kommentið á myspace
Það er mikið að þú klippir á naflastrenginn við hana móður þína drengur!!! Farinn að setja í þvottavél og alles alveg sjálfur, þú ert að alveg verða stór strákur. Ekki það að þú eigir sjéns í kjééllinn