Búinn að fatta hverju ég gleymdi! 23. febrúar, 2008
Posted by Ásgeir in Daglegt líf, Þýskaland.trackback
Þegar maður fer í lengri ferðir að heiman þá gleymir maður að sjálfsögðu alltaf einhverju. Ég hef hingað til ekki fundið neitt sem mig vantaði sérstaklega, nema kanski mömmu, en hún gat víst ekki komið með í þetta skiptið. En í dag fattaði ég hverju ég gleymdi heima á klakanum. STUTTBUXUM OG SÓLARVÖRN! Já, ég skrapp í túristaferð til Lindau, lítill bær við Bodensee vatnið syðst í Þýskalandi. Þar sér maður alveg yfir til Austurríkis og Sviss hinu megin við vatnið. Það var svo æðislega gott veður að ég bara setti upp derhúfuna og var á stuttermabolnum að kafna úr hita. Reyndar voru skólafélagarnir (sem af einhverjum undarlegum ástæðum eru að stórum hluta frá há-hitalöndum (Brasilíu, Mexíkó, Kólumbíu, Túnis, Grikklandi og Kamerún t.d.)) flestir í peysum og jafnvel sumir í úlpum utanyfir og leið bara þokkalega. Kennarinn var svo að segja í gær að spáin fyrir morgundaginn væri 16°C og sól.
Ég skal reyna að hugsa um ykkur heima í rigningunni og sullinu á meðan ég ligg léttklæddur að lesa í bók með ís í hinni í Englisher Garten
Hey, ef einhverjum var ekki búið að detta það í hug þá er ég hörmulegur dansari. Allavegana var ég dreginn á einhvern Suður-Amerískann stað í gærkvöldi og þessar mjaðmahreyfingar eru bara ekki eitthvað fyrir stirðann Íslendinginn, kanski ég reyni bara að kenna þeim gömlu dansana?
Það er miklu meira af táknmáls-tölurum hérna en heima. Þeir svona ferðast í hópum bara. Til dæmis var áðan að koma inn stór hópur af svona fólki hérna inná hótel og það er alveghreint magnað að sjá stórann hóp af fólki og heyrist ekki múkk í þeim
Ég held ég sé farinn að gleyma íslenskunni aðeins. Allavegana þegar ég er að skrifa á msn er ég farinn að sletta aðeins á þýsku. Dáldið leiðinlegt fyrir þá sem ekki hana skilja, því þá þarf ég alltaf að útskýra..
Ps. Gott ráð til að gera afgreiðslufólk pirrað: Ég fór á McDonalds um daginn og átti að borga 4,90 Evrur og rétti konunni 50 evru seðil og svo 90 sent í endalausri smámynt
Svipurinn á henni var mjög grimmur þegar hún sá þetta en ég hló bara að henni

Ásgeir!!!
Ég er farin að halda að þú sért bara alls ekki Íslendingur. Í fyrsta lagi ertu orðinn algjör nískupúki með að geyma alltaf matinn sem þú getur ekki klárað og tekur upp lifnaðarhætti Þjóðverjans eins og að gefa konunni 90 senta klink, þetta er sálarmorð, believe me!!
Svo dansaru eins og stífur Þjóðverji!
En ég er bara stolt af þessu
tökum Þjóðverjann til fyrirmyndar, jeeiii! Hlakka til að fá þig á klakann. En þú hefur það örugglega bara ótrúlega gott þarna úti.