jump to navigation

KFC München vs. KFC Reykjavík 27. febrúar, 2008

Posted by Ásgeir in Pæling, Vitleysa, Þýskaland.
trackback

Núna er ég búinn að fara tvisvar á þennan eina KFC stað hérna í München og er þetta ekki alveg nákvæmlega eins og heima. Ég fæ mér bara Zinger borgara-máltíð einsog venjulega og það fyrsta sem ég sé þegar ég tek við bakkanum er að frönsku kartöflurnar koma í svona glerskál, en ekki pappapoka einsog heima. Þetta þýðir að franskarnar eru ekki ógeðslega sveittar, eins og er nú bara alltaf á KFC heima. Brauðin eru líka öðruvísi. Þau eru einhvernvegin munstruð hérna, eins og einhverskonar fansý rúnstykki, og líka harðari en venjulega. Svo er nú aðalmálið að zingerkjötið sem er sterkara en það venjulega er ekki svo sterkt heima en hérna er þetta bara einsog að tyggja jalapeno, miklu sterkara en þetta á að vera. En stærsti munurinn er nú í verðinu. Þessi máltíð kostaði mig 4,89 evrur (sirka 490 íslenskar) en að mig minnir kostar þessi sambærilega máltíð 799 krónur á klakanum.. Dáldið mikill munur, hérna er 40% ódýrara en heima.

Í gær átti einn bekkjarfélagi minn afmæli, 24 ára gamall kallinn frá Mexíkó. Þess vegna var að sjálfsögðu farið á mexíkanskan veitingastað í gærkvöldi. Ég var ekki búinn að borða neitt og leitaði því að einhverju ágætu á matseðlinum. Að sjálfsögðu voru nachos og taco og allt þetta dót sem fæst líka á Íslandi en það sem heillaði mig mest var þessi dýrindis argentínska nautalundarsteik með kryddsmjöri og frönskum. Mjög góð steik, og kostaði nú ekki svo mikið, samkvæmt matseðlinum 15 evrur (1500 kr).

Í miðri veislu segir annar Íslendingurinn við mig: “Ásgeir, sjáðu þessa, væriru ekki til í hana?” og ég segi “Hún er nú ágæt, en hugur minn liggur heim til Íslands”. Þá segir hann “Já, er það þessi Elísabet?” og ég segi bara “WTF? Nei.. hvað..?”. Þá eru þeir bara búnir að googla mig. Fundu bloggið, myndasíðuna, myspaceið og facebookið og búnir að skoða þetta allt. Já, ég á semsagt mína eigin stalkera :)

Áður en ég held heim ætlaði ég að borga reikninginn minn og tala við þjóninn. Annaðhvort er hann eitthvað vitlaus í hausnum eða svona hrifinn af mér að hann gaf mér góðann afslátt. Hann allavegana tók upp skrifblogg og spurði hvað ég hefði fengið mér. Ég byrja að telja upp Steik (15 evrur) og kók með (2,5 evrur), svo fjórir bjórar (3,20 evrur stykkið eða 12,80 saman)(ég drakk þetta ekki allt einn, lánaði vini mínum) og svo eitt skot (3 evrur). Svo segir þjónninn einhverja tölu en ég næ ekki alveg hvað hann segir. Ég held á 50 evru seðli, tveimur 20 og einum 5 evru og rétti honum bara. Hann tekur einn tuttugu evru og einn fimm evru seðil og svo bara tschüss og takk fyrir komuna :D Þarna fékk ég semsagt dýrindis steik og drykki fyrir 2500 krónur, veit ekki alveg hvað þjónninn var að hugsa :P

Þegar ég mæti í skólann í morgun er ein bekkjarsystir mín frá Brasilíu eitthvað að fikta í öðrum skónum sínum, svo lítur hún upp og heilsar og spyr mig hvort ég sé nokkuð með “Durex”? Ég verð dálítið undrandi en spyr svo til baka “Condom??” og skil ekki alveg hvað hún er að meina. Hún skilur ekki heldur neitt í neinu og eftir smá samræður kemur í ljós að smokkavörumerkið Durex er ekki voðalega þekkt í Brasilíu en það er hinsvegar vinsæl tegund af límbandi sem heitir Durex hjá henni :D Hana vantaði semsagt bara límband því það var eitthvað að pirra hana í skónnum, en þetta kom okkur mjög á óvart :P

Er að horfa á Mr. Bean þegar þetta er skrifað, á þýsku náttúrulega eins og allt annað, og er að velta því fyrir mér hvort að öll óhljóðin í honum hafi líka verið dubbuð af kallinum sem segir fyrir hann línurnar á þýsku :/ ég er nefninlega ekki alveg viss. Var líka að velta þessu fyrir mér með Kenny í Southpark um daginn..

Ummæli»

1. Rakel besta vinkona - 28. febrúar, 2008

Hahahahha þú ert svo mikill snillingur Ásgeir
Condom?
hahahahahha :D hefði hún skilið ágætis ensku að þá held ég að hún hefði farið yfir um og sent þér einn á kjaftinn ;)

2. Rakel besta vinkona - 28. febrúar, 2008

Svo þegar ég sagði Andra að þú fengir franskarnar í glerskál þá sagði hann: VIÐ ÞURFUM SKO AÐ FARA ÞANGAÐ!!!

hehehe

3. Ásgeir - 28. febrúar, 2008

Haha, já, hún vard ekkert smá undrandi thegar ég spurdi hana ad thessu :P
En til ad komast á KFC tekuru U1 í áttina ad OlympiaEinkaufZentrum og ferd út á Georg-eitthvad-ring, ég man ekki alveg hvad er tharna í midjunni, en thetta er skrifad svona med bandstriki og öllu.. Thessi stöd er einni stoppistöd lengra en Westfriedhof :)

4. Ásgeir - 28. febrúar, 2008

Hey, ég mundi það í dag, stöðin heitir Georg-Petuel-Ring :)

5. Andri Týr - 29. febrúar, 2008

ég vil fá kfc í glerskál
spursmál hvrt rakel vilji koma með til munchen til að fá slíkt

kveðja

kentucky man

6. Ásgeir - 29. febrúar, 2008

Jáh, maeli med thví. Ég verd samt ad vidurkenna ad ég laug ad ykkur. Thetta er ekki í glerskál heldur í svona hvítri skál (eda kanski kallast thad gler skál, en annars postulínsskál.. eda thannig.. thid vitid) Allavegana í svona fínu margnota daemi

7. Ásgeir - 1. mars, 2008

Nei, heyriði nú mig.. Stöðin heitir víst ekki Georg-Petuel-Ring eftir allt saman. Það er allt önnur stöð annarsstaðar í bænum sem heitir Petuel-Ring, en þessi Georg-Brauchel-Ring. Vona þetta sé rétt núna :P

8. stafakallinn - 2. mars, 2008

jaja seigir okkur að þú hafir ekki drukkið þetta allt einn ha fillibytta

9. stafakallinn - 2. mars, 2008

og þældu í því hvað skálarnar herna heima væru fljótt brotnar eða stolnar eða buið til mega mikið af sósu úr BBQ, brunni sósu, koktelsósu, hrásallati, fitu, og kóki ha manstu eftir því

10. Ásgeir - 2. mars, 2008

haha, skalarnar kaemu allavegana pottthett ekki heilar og thokkelega hreinar til baka :P

11. stafakallinn - 2. mars, 2008

nei nei en það vantar samt mest bonty a kfc