Ég fór á safn í dag 9. mars, 2008
Posted by Ásgeir in Daglegt líf, Þýskaland.trackback
Þá hugsa margir “wtf? er ég á réttu bloggi, ekki er hann Ásgeir náttúrufræðingur að skoða listaverk og menningu í metróborgum Evrópu??”. En jú, þetta var sko nefninlega svona náttúrufræðisafn
Þetta var í fáránlega stóru húsi, ég var sko sirka fimm tíma þarna inni og náði ekki að skoða allt. Þarna eru sýningar um stjörnufræði, efnafræði, eðlisfræði, líffræði, lyfjafræði, flugvélar, geimferðir, prentsöguna, gler og glergerð, keramik, pappír, vatnsaflsfræði, brúargerð, tölvur, rafmagn, segulsvið, námur, olíu og jarðgös, málma, samskipti, stórvirkar vinnuvélar og bara allt þarna inná milli. Nokkar myndir á myndasíðunni:
Svo fór ég nú líka í klippingu í gær. Fyrirgefðu Andri Týr, en ég var næstumþví hættur að sjá út og sturtuferðirnar tóku 10 mínútum lengur en venjulega afþví það er svo fáránlega leiðinlegt að þurrka svona mikið hár..

Er ég ekki alveg eins og kallinn sem ég sagði ég yrði einsog ef ég færi í klippingu hérna úti? Sjá: http://asgbjo.wordpress.com/2008/02/01/a-morgun/
Veit nú ekki alveg með það.. :/

Mamma þín er bara nokkuð ánægð með klippinguna.
Safnið hlítur að vera áhugavert, má ekki eyða nokkrum dögum þar?
Haha
já, ég er samt ekki med hárid svona útí loftid venjulega.. Thad var nú bara hárgreidslukonan sem sá um thad..
En jú, í túristabókinni stendur ad madur thurfi alveg tvo-thrjá daga til ad komast í gegnum thad allt.. Svo er stúdentaafslátturinn svo gódur (3 evrur í stad 8,5 evra) ad thad má alveg kíkja aftur til ad klára..
Jæja, ég efa það að hann Andri sé ánægður núna
fór á svipað í London, verður að fara með mér á það eitthverntíman. Það hér einmitt: Natural museum og var geðveikt Ásgeiralegt!!
en mér finnst þetta flott klipping og safnið hljómar bara ágætlega
Haha
ásgeiralegt
Nauhh, flott klipping
eins og þú veist átti hér að vera: hét
Ég spái því á að á morgun bloggar þú um súpufyrirtæki
sjáum hvort það rætist!
p.s. æ miss jú
HAHA
bara farin að lesa í rúnir eða sástu þetta á skýjunum?
Ásgeir! þú verður að gera þér grein fyrir því núna og strax að þú ert að tala við bráðgáfa manneskju með greindavísitölu hærri en alheimurinn! Don’t sweat yourself!!!!
p.s. ég er líka skyggn
sé þetta bara innra með mér
ekki satt?
Þú ert svikari, djók, þetta er flott en ég geri betur