jump to navigation

Allt er nú til, ef maður veit hvar skal leita! 11. mars, 2008

Posted by Ásgeir in Vitleysa, Þýskaland.
trackback

Það er ýmislegt undarlegt sem ég hef fundið hér í borginni. Eða kanski ekki undarlegt, en eitthvað sem maður á ekki að venjast heima á Íslandi. Ég fór á rúntinn í dag og tók nokkrar myndir af því sem ég hef aldrei séð áður á Íslandi.

  • Maggi búðin
    Maggi búðin
    Já, þetta er víst súpubúðin. Fór nú ekki inn, en ég held þetta sé samt meira blanda af veitingahúsi með áherslu á súpur og kanski smá búð með vörum þeirra.
  • Dalur
    Dalur
    Þetta er stór verslunargata. Nafnið á henni þýðist “Dalur” á íslensku. Ég hef reyndar ekki komið á Eskifjörð, en ég hef nú ekki séð þetta götuheiti annars staðar
  • Fína klósettið
    F�na klósettið
    Það eru reyndar ókeypis almenningsklósett á lestarstöðinni, en þarna er hægt að borga 1,1 evrur fyrir að fara á extra hreint klósett.
  • Franskar í postulíni
    Franskar � postul�ni
    Svona líta þær út, franskarnar sem Andra Tý langar svo mikið í.
  • Nuddstólar
    Nuddstólar
    2 evrur í raufina og þú færð 10 mínútur af unaðs-baknuddi. Þessir eru í verslanamiðstöðinni en ég sá þá líka á náttúrufræðisafninu.
  • Útikaffihús
    Útikaffihús
    Væri þetta ekki bara fokið á Laugarveginum í mars?
  • 7 hæða útivistarbúð
    Útivistarbúð
    Sú allra stærsta sem ég hef séð. Hagkaup í Holtagörðum útivistarverslananna. 7 hæðir af öllu sem tengist útivist. Ef ég vinn milljón í lottói ætla ég að fara þangað.
  • Vegvísir að veitingahúsum
    Hofbräuhaus
    Ég minnist þess ekki að hafa séð skilti sem bendir á Argentínu eða Bæjarins bestu eða eitthvað álíka..?

Svo er það allra síðasta, en ég þorði ekki að taka mynd af því. Ég kýs að kalla það “atvinnu rónanna”. Það hafa nú allir séð fólk gramsa í ruslatunnum að leita að flöskum til að selja, meiraðsegja á Íslandi líka. Sumir hérna eru samt með vasaljós á sér til þess að sjá betur ofaní tunnurnar svo það fari nú ekkert framhjá þeim :D

Fyrir ykkur sem nenntuð að lesa þetta allt, þá eru hérna smá tipps um hvernig má spara smá tíma í lífinu:

Mesta snilldin finnst mér þetta hvernig má fljótskræla soðið egg. Verð að prófa það einhverntíman :)

Ummæli»

1. stafakallinn - 11. mars, 2008

haha prufaði eggið en gleimdi víst að sjóða það:b en akureyrar bær var einu sinni með úti kaffihús heilt ár það fauk ekki en maður fraus við járn hlutan af stólunum:b

2. Rakel Ósk - 12. mars, 2008

Snilldar blogg!
ég vissi þetta með súpuna ;) segðu svo ekki að ég sé ekki skyggn!

3. Andri Týr - 12. mars, 2008

Geðveikt ég ætla sko að fá mér franskar í postulíni

4. Ásgeir - 12. mars, 2008

Góður drési, vel gert :)
Þú hefur yfirnáttúrulega hæfileika Rakel :P

5. Rakel Osk - 12. mars, 2008

Ja klarlega Asgeir, en djofull er siminn minn ad meika thad