jump to navigation

Páskafrí 21. mars, 2008

Posted by Ásgeir in Daglegt líf, Þýskaland.
trackback

Er núna að njóta tveggja daga páskafrísins míns :) Reyndar treður ein helgi sér þarna inná milli þessara daga. Síðan eru ekki nema fjórir skóladagar eftir, og á tvemur þeirra eru próf. Það er semsagt svona B1-próf í næstu viku og það semsagt gildir (held ég) sem skírteini uppá það að maður kunni nógu mikið í þýsku til að læra hérna í háskóla. Hef nú ekki miklar áhyggjur af þessu þar sem líf mitt veltur ekki á þessu einsog hjá sumum öðrum í bekknum sem ætla sér að læra hérna í haust.

En fyrir nokkrum árum sá ég frétt um að það væri komin ný útgáfa af Monopoly spilinu vinsæla. Þessi var nútímaleg með plastkortum og “bankareiknivél” í stað pappírspeninga. Fylgdi reyndar með fréttinni að þessi útgáfa væri til að byrja með gefin út í Þýskalandi. Þegar ég fór í eina dótabúð hérna um daginn þá mundi ég eftir þessu og ákvað að leita. Vitiði bara hvað, ég fann svona debetkorta-Monopoly :D En það eru tvö vandamál. Annað (sem er svosem í sjálfu sér ekkert vandamál) er að ég fann þetta bara í einhverji Simpsons útgáfu, semsagt eru kallarnir og göturnar og allt úr Simpsons. Kanski skemmtilegt að spila, en gefur ekki sama fýlinginn og venjulega útgáfan. Hitt vandamálið, sem er raunverulega vandamálið, er að þetta er náttúrulega á þýsku (einsog allt hérna). Eini vinur minn sem ég man eftir að skilji þokkalega þýsku er Rakel, en svo eru einnig örfáir sem kunna að segja Ich heisse og ekki mikið meira. Ætli það yrði þá ekki sennilega bara þannig að ég myndi bara að spila við sjálfan mig þar sem enginn annar skildi neitt í þessu og nennti að spila við mig.. :/ vandamál vandamál!

Legoland á morgun :) vonandi ef veðrið verður ágætt..

Það er víst líf á Mars!
Mús á Mars

Ummæli»

1. stafakallinn - 21. mars, 2008

hahahahahahahaha ja skemtilegt

2. Rakel - 23. mars, 2008

hehehe snilld Asgeir!!!
en ef thu aetlar ad kaupa svona spil ad tha heimta eg ad spila med ther
kvedja fra Noregi….