Súrt efni 23. mars, 2008
Posted by Ásgeir in Pæling, Vitleysa, Þýskaland.trackback
Ég er orðinn handviss um að það er einhverskonar undarleg ráðstefna hérna í bænum þessa dagana. Það er bara óeðlilega mikið af einhverju goth-fólki að ráfa um götur borgarinnar. Allir undarlega svartklæddir og hvítmálaðir í framan með dauðahótunarnælur á Marilyn Manson töskunum sínum. Endalausir hópar af þessu fólki útum allt bara. Mest fór það nú samt í mig þegar ég var í lestinni og sá tvær svona stelpur. Þær voru sennilega ekki eldri en svona 13-14 ára. Önnur þeirra var í skóm með sirka 15 sentimetra þykkum skósóla en samt náði hún mér bara rétt uppá bringu. Alveg ótrúlegt!
En smá könnun, hversu margir hugsuðu súrefni þegar þeir lásu titilinn? Ég var að fatta hvað orðið ’súrefni’ er kjánalegt. Manni finnst O2 ekkert vera eitthvað súrt. Tengir það allavegana ekkert við þau efni sem smakkast súr, sítrónusafi til dæmis. Ég fór að velta þessu fyrir mér þegar ég lærði að súrefni á þýsku er einmitt Sauerstoff, sem er bara bein þýðing á íslenska orðinu, þó kanski í hina áttina.
Wikipedia:
Bei der Reaktion der Oxide von Nichtmetallen in hohen Oxidationsstufen bilden sich die sogenannten Sauerstoffsäuren, die für die Namensgebung des Sauerstoff verantwortlich sind.
Þarna fann ég smá útskýringu á þessu. Lauslega þýtt: “Við efnahvörf oxíða og málmleysingja í háum oxunarskrefum myndast svonefnd súrefnissýra, sem svarar fyrir nafngiftina á súrefninu”. Váh, er ég ekki bara orðinn ágætur í þýskunni
Ég hef nú oft velt því fyrir mér hvort að litla, sæta Ísland sé einhverntíman í heimsfréttunum. Hef nú horft dáldið á CNN hérna en aldrei fengið fréttir af flóttamönnum á stríðshrjáða klakanum eða af æsispennandi forsetakosningum. Í morgun skeðu samt undur og stórmerki. Litla landið okkar var í sjónvarpinu, en ekki í fréttunum. Rakst á “Ripley’s unglaubliche Welt” (Ripley’s ótrúlegi heimur) á einni stöðinni. Þar var verið að fjalla um jarðvarmaorkuver og ótrúlegt en satt að almenningur væri að baða sig uppúr affallinu frá þessu orkuveri. Var þá ekki bara Bláa Lónið, eða Blaue Lagoonen, í “ótrúlegt, en satt” þættinum góða

Goth fólk er listafólk
Haha, svona einsog þú?