Blóð, sviti og tár 24. mars, 2008
Posted by Ásgeir in Daglegt líf, Pæling, Þýskaland.trackback
Páskamánudagur er í dag. Þjóðverjar eru greinilega hugmyndasnauðari en Íslendingar þar sem hérna er bara Páskasunnudagur og Páskamánudagur. Skírdagur er reyndar Græni fimmtudagurinn (Grün Donnerstag). Svo heldur hugmyndasneyðin áfram þar sem föstudagurinn langi er óþýðanlegi “Karfreitag” og laugardagurinn, sem er ekkert merkilegur hjá okkur, heitir “Karsamstag” og viðeigandi heitir Dymbilvikan “Karwoche”. Vá hvað ég veit mikið.
En ég var næstumþví farinn að svitna mjög mikið áðan. Spurði konuna í afgreiðslunni á laugardaginn hvort það væri allt opið í dag einsog venjulega mánudaga eða frídagur. Hún sagði að það væri ALLT lokað, semsagt frídagur, og ég tók því sem það væri semsagt einsog venjulegur sunnudagur hérna þegar allar verslanir eru lokaðar en veitingastaðir og söfn eru opin. Þannig var þetta allavegana á föstudaginn. Svo þegar ég nennti að rífa mig uppúr bælinu og fá mér morgunmat um 4 leitið í dag rölti ég útá næsta Subway en þar var lítill sætur miði í glugganum sem tilkynnti mér það væri lokað í dag. Þá fór ég að velta því fyrir mér hvort að konan hefði í alvörunni verið að meina að það væri gersamlega ALLT lokað í dag, svona einsog jóladagur á Íslandi fyrir nokkrum árum. Með hland fyrir hjartanu tók ég götulestina niðrí bæ. Þá sá ég fyrst að það sat fólk inná einum veitingastaðnum og svo var hurðin opin á Subway við hliðiná og ég andaði léttar
Þurfti ekki að lifa á afgangnum af páskaegginu og saltkringlum í dag..

Hehe, nett sjokk yfir að fá ekki subwayinn sinn
Jáh, þokkalega..
Ég meina auðvitað!! ég myndi leggja höf undir fætur mér bara til að fá nammi á laugardögum!
haha
bara vera jesús eða?
Já ef þess þarf!
maður getur ekki brotið upp vanir