Sjii hvað ég er gamall :S 26. mars, 2008
Posted by Ásgeir in Pæling, Þýskaland.trackback
Hey, muniði eftir því þegar skólar voru tvísettir? Kanski ein spurning fyrst. Muniði hvað það er þegar skóli er einsettur/tvísettur? Það er svona þegar maður var í skólanum fyrir eða eftir hádegi, gat valið, en síðan var þessu breytt í bara fyrir hádegi.
Var að lesa bréf um þjónustu Strætó við börn og þá kom þessi lína fyrir:
Eftir að skólar eru einsettir …
Fyrst mundi ég ekki hvað þetta einsettir væri, en svo kom það í kollinn á mér og samstundis uppgötvaði ég hvað ég væri orðinn ótrúlega gamall :S Baldur var líka að segja mér að í 4. bekk þá hafi hann verið í skóla eftir hádegi, reyndar því að grunnskólinn í Hveragerði rúmaði ekki alla nemendurnar, en vá, ég trúi því ekki það sé svona langt síðan.
Nafnavenjur eru undarlegar hér á landi. Nokkur nöfn sem ég hef séð á starfsmannaspjöldum á KFC: “Olli”(kona), “Safae” og “Shpresa”. Ekki einu sinni spyrja mig hvernig maður ber þetta síðasta fram

Í 1. bekk og 2. bekk var ég í skóla eftir hádegi
Já, og ertu að gera þér grein fyrir því að þetta var Á SÍÐASTA ÁRÞÚSUNDI?? þú veist, það er komin ný öld!!
Já þetta er ekkert smá fljótt að líða
gerði mér ekki grein fyrir þessu.
En ég man samt hvað þetta var skemmtilegt, alltaf á morgnana var maður bara að horfa á barnatímann, svo fór maður í skólann klukkan 1 og maður var búinn klukkan 4 eða 5.
Svo man ég eftir því að í 3. bekk þegar það átti að fara að breyta þessu að þá fannst mér það algjör bömmer að vera búinn klukkan 2 í skólanum og þurfa að vakna klukkan 8.
Við erum gamalmenni
Ég var nú sem betur fer alltaf fyrir hádegi svo thetta var nú ekki mikil breyting fyrir mig..
Sem betur fer?
Það var miklu töffaðara að vera eftir hádegi!
eg gat líka valið hvort eg væri í skólanum fyrir eða eftir hádeigi í 1 bekk svo varð bekkurinn svo fámennur að við feingum ekki að velja
Það eru óréttlæti!!!!
Haha, ekkert lýðræði hjá þér