jump to navigation

Kein Zutrit … 30. mars, 2008

Posted by Ásgeir in Daglegt líf, Þýskaland.
trackback

… stóð ekki á neinum skiltum þegar ég steig útúr flugvélinni. Steikurnar á flugvellinum voru líka óvenjulega dýrar, kostuðu 220 í staðinn fyrir einungis 20. Helsta ástæðan er sennilega að ég er ekki lengur í Þýskalandi heldur kominn til Danmerkur þar sem menn brúka dönsku krónuna en ekki evruna. Vaknaði klukkan 10 í gærmorgun og fattaði að ég átti eftir að klára að pakka, fá mér morgunmat og vera kominn útúr herberginu kl. 11. Flýtti mér einsog ég gat, því ég hafði ekki hugmynd um hvort ég þyrfti að borga extra ef ég færi fram yfir tímann og ekki hafði ég nú efni á því að borga eitthvað extra. Eftir tvo mánuði átti ég rétt nægan pening eftir fyrir lestarferðinni útá völl og mögulega að fá mér eitthvað að borða útá vellinum meðan ég beið eftir flugvélinni sem kom 5 tímum eftir að ég mætti á staðinn. Hafði nú samt nóg að gera, margt að skoða, lesa sögu Hringadróttins, spila hernaðarkænskuleiki og hlusta á tónlist. Síðan tók við miður skemmtileg flugferð. Eini vegurinn sem hún var ekki góð er hvað ég þoli ekki að hjá öllum öðrum flugfélögum en Icelandair kostar allur matur og það ekkert ódýrt. Hlakka eiginlega til matarins í vélinni heim til Íslands. Fékk samt heimaeldaða pizzu í gær sem var frábær og svo upphitað pasta núna, svo ég er að fýla það í botn að fá eitthvað annað en skyndibita :)

Ummæli»

1. Rakel Ósk - 31. mars, 2008

Sæll…
Velkominn til Danmerkur, finnst eins og þú hafir farið í gær til Þýskalands, mikið er þetta fljótt að líða!!!

Vildi bara minna þig á nirfilskeppnina, vorkenni þér ekkert að borða upphitað pasta, vertu bara tilbúinn fyrir morgundaginn og láttu eitthvern annan kaupa fyrir þig og prúttaðu eins og fábjáni! Skrifar niður alla þína eyðslu og svo gerum við samanburð í lok mánaðar.

Vil líka minnast á það að ég sakna þín :(

2. Andri Týr - 31. mars, 2008

þú ert illur maður

3. Ásgeir - 31. mars, 2008

Haha, var ég að láta konuna þína láta þig borga allt fyrir sig? :P

4. Andri Týr - 31. mars, 2008

Ekki bara það heldur er hún ófær um að sinna dagsverkum sínum eins og að nudda á mér bakið og sleikja á mér tærnar út af því að hún datt af hjólinu sem að þú lagðir álög á!

5. Ásgeir - 1. apríl, 2008

:P Svona virkaði vúdúið mitt vel

6. ElvaDögg - 2. apríl, 2008

Hvenær ætlarðu að koma með myndir af litlu? :)

7. Rakel Ósk - 7. apríl, 2008

Ég er svo mikill nirfill Ásgeir að ég tími ekki að segja þér hversu mikið ég eyddi úti í Noregi!!!

8. Ásgeir - 7. apríl, 2008

Er alltof latur hérna til að taka myndir.. það eru ennþá myndir inná vélinni frá helginni fyrir páska :P

En Rakel, þú verður að segja, ég þarf nefninlega að eyða smá pening og verð að vita hvað ég hef mikið budget :P