Heima 16. apríl, 2008
Posted by Ásgeir in Daglegt líf.trackback
Þá er ég kominn heim eftir hreint frábæra útlandaferð. Tveir mánuðir í þýskuskóla í München og svo hálfur mánuður í barnapössun í Danmörku. Ekki frá því ég hafi lært helling. Get allavegana þvegið þvottinn minn núna
og jú, kanski eitthvað í viðbót.
Ætlaði að fá mér vinnu aftur í leikskólanum áður en ég fer að vinna í Útilífsskólanum í sumar. Fór og talaði við aðstoðarskólastjórann og hún sagðist ekki getað lofað mér vinnu. Skólastjórinn kemur í næstu viku og ég þarf að tala við hana, útaf því að það var talað við hana um daginn að hún væri með ALLTOF MIKIÐ AF STARFSFÓLKI.. Það þótt mér frekar undarlegt að það væri of mikið af starfsfólki á leikskóla
Núna er það bara að hanga yfir annarri seríu af House

Velkominn heim!
hvað með að þú sækir um vinnu í Útilíf og vinnur þar aðra hvora helgi með útilífsskólanum?
Úff, alltof mikið, eitthvað, hreyfing fyrir mig