Þrjátíu og tveir 29. apríl, 2008
Posted by Ásgeir in Vitleysa.trackback
Tala dagsins er:
32
Ég var að hugsa um að koma með leik jafn fáránlegan og Núið sem hún Rakel vinkona bloggaði um í dag. Hann virkar þannig að ég kem með tölu á hverjum degi á bilinu 1 – 100 og sá sem giskar næst henni fær gjafabréf á eins dags útiveru í Heiðmörk, að því gefnu skilyrði að Mars sé ekki innan tríkvartþrírótar við Venus og Galíleó. Gjafabréfið gildir í tvo daga frá útgáfu þess.
Fór í nýja keppni við Rakel. Hver ætti fleiri vini. Hef reyndar ekki hugmynd um hver vinnur, en hérna eru einhverjar tölur:
17 vikur (2. vika í Janúar til núna), samtals 2.193 heimsóknir og það gera 129 stykki á viku. Dem ég er strax búinn að tapa fyrst rakel er með 110 heimsóknir á þrem dögum. Mest var það nú samt 316 heimsóknir í viku 8. Miðvikudaginn 13. febrúar komu flestir, eða 71. Þannig að ef við tökum stærsta daginn minn og þinn Rakel, þá vinn ég ![]()
Á þessu tímabili bloggaði ég 38 sinnum og fékk 160 komment
Vá, svo kanski hugsanlega blogga ég svona 20 sinnum í viðbót út árið

Hahahahahahaha
ég er greinilega sjálfskipuð í þennan leik og fæ ekkert ráðið um það, skal draga fleiri til þess að taka þátt! En hömmm, 32, ertu að reyna að drepa mig?? 3 er óhappatalan mín og 2 happatalan mín en þegar þessar tölu standa saman að þá er öll von um gæfu úti!
En hömm núna ætla ég að líta í Blogg tölfræðina!!
Best day ever, var mánudagurinn 31. mars en þá heimsóttu 89 manns síðuna mína!
Total posts eru 90
Samtals komment: 402
35 manns hafa skoðað síðuna mína í dag í þessum töluðum orðum.
Alls hafa 4268 manns skoðað síðuna mína
Mesta aðsóknin á heimasíðuna mína var í febrúar en þá skoðuðu 1200 manns hana
Vinsælasta vikan var 8 vika þessa árs en þá voru 360 sem skoðuðu hana í þeirri viku.
Öhmmmm
RÚST!!!
Þú ert vond
ég ætla útí horn að gráta. En þú ert líka búin að hafa þína lengur en ég
Alveg hálfum mánuði
en þetta er allt spurning um markaðssetningu! T.d
SKOÐIÐ ASGBJO.WORDPRESS.COM OG ÞÚ FÆRÐ FRÍAN BJÓR ÚT ÁRIÐ
svo náttúrulega kemst fólk að því að þetta er FEIK en þá ertu allaveganna komið með eitt ,,hit” á síðuna þína og svo gabbaru bara næsta og næsta en svo kemur fólkið alltaf aftur inn á síðuna þína voða biturt til að skoða hvort að eitthver annar asni hefur lent í sömu sporum
Okei okei, allt í lagi, þú átt fleiri vini en ég
ég get bara platað fólk til þess að halda ég sé eitthvað merkilegur