jump to navigation

Meiri stærðfræði 30. apríl, 2008

Posted by Ásgeir in Daglegt líf, Pæling, Vitleysa.
trackback

Ég er mega duglegur. Fór með umsóknina um inntökuprófið í læknisfræði niðrá Tanngarð áðan. Sjáum hvort þetta gangi betur núna en síðast. Elísabet er ekki jafn mega dugleg, ekki einu sinni búin að ákveða sig hvort hún nenni í prófið eða ekki.

Hvort er gæinn að segja Bahama eyja, einsog í eyjur/Ísland er eyja, eða Bahama heya, bara uppífyllingarorð..? Er að verða brjálaður á þessu hérna

OG af hverju í ósköpunum hafa fyrirtæki einsog Bónus og Krónan ekki efni á því að hafa einn heftara á hverjum kassa? Geri dáldið af því að taka nótu fyrir dóti sem ég kaupi (fyrir skátafélagið) og þarf alltaf að bíða í hellings tíma á meðan verið er að rétta eina heftarann á svæðinu á milli allra kassanna til þess eins að komast að því að hann er stíflaður eða vantar hefti í hann og þá tekur við meira vesenið að laga það. Ef ég ætla einhverntíman að vera eini vinnandi Íslendingurinn á kassa í Bónus ætla ég sko að koma með eigin heftara og vera fljótastur að þessu

Ef þið fáið einhverntíman ávísun frá mér megiði búast við einhverju svona:

:D

Ummæli»

1. Rakel Ósk - 1. maí, 2008

Heehhehe þú ert svo fyndinn. Ég er sammála með skortinn á hefturum!
En ég er stolt af þér að fara í prófið f læknisfræðina!

2. Ásgeir - 1. maí, 2008

Takk :) næst þarf ég að vera duglegur að byrja að læra einhverntíman

3. Rakel Ósk - 5. maí, 2008

já, lærdómur piff!?
en ég giska að tala dagsins sé 44
bara af því að ég er svo klár

4. Ásgeir - 5. maí, 2008

VÁ, það var akkurat rétt hjá þér :D

5. Rakel Ósk - 5. maí, 2008

JESSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS