Ég í Þýskalandi
Hvað er ég að gera:
Er að læra þýsku í þýskuskólanum DID – deutsch institut. Og þess utan er ég að reyna að bjarga mér á þýsku úti á götum og í búðum, og það er sko minna mál en maður hefði haldið. Maður þarf nefninlega ekki nema að standa einhverstaðar, eða horfa á lestarkortið til þess að einhver komi og spyrji mann hvar Óperan sé eða eitthvað hótel, og svo náttúrulega reyni ég fyrir mér í þýskunni þegar ég fæ mér að borða.
Hvar er ég:
Gisti á A&O hótel/hostel (semsagt bæði hótel og svona farfuglagisting í sama húsinu). Held ég hafi reyndar verið viljandi settur í eitthvað betra herbergi hérna afþví það er miklu flottara en ég átti von á. Svona akkurat andstæðan við áramótaskaupið þar sem þeir voru með voða fína mynd og svo var herbergið drasl, en hjá mér ýmindaði ég mér eitthvað drasl og fékk svo, í fyrsta lagi tveggja manna frekar stórt herbergi, og í öðru lagi stendur á heimasíðu hostelsins (sem ég fékk gistinguna hjá í gegnum skólann) að það kosti að fá skipt um handklæði og rúmföt, en það koma á hverjum degi einhverjar konur og sópa og skipta um handklæði og voða fínt
Hægt að ná í mig?
Já, en ekki í gegnum venjulega símanúmerið, það verður á pásu næstu tvo mánuðina líklega. Fékk mér þýskt símanúmer, svo það sé ódýrara fyrir mig að taka á móti símtölum og númerið er: 00 49 177 1341114. En svo að sjálfsögðu er ég í reglulegu netsambandi og hægt að senda mér e-mail og ég verð líka á msn.
