Kein Zutrit … 30. mars, 2008
Posted by Ásgeir in Daglegt líf, Þýskaland.8 comments
… stóð ekki á neinum skiltum þegar ég steig útúr flugvélinni. Steikurnar á flugvellinum voru líka óvenjulega dýrar, kostuðu 220 í staðinn fyrir einungis 20. Helsta ástæðan er sennilega að ég er ekki lengur í Þýskalandi heldur kominn til Danmerkur þar sem menn brúka dönsku krónuna en ekki evruna. Vaknaði klukkan 10 í gærmorgun og fattaði að ég átti eftir að klára að pakka, fá mér morgunmat og vera kominn útúr herberginu kl. 11. Flýtti mér einsog ég gat, því ég hafði ekki hugmynd um hvort ég þyrfti að borga extra ef ég færi fram yfir tímann og ekki hafði ég nú efni á því að borga eitthvað extra. Eftir tvo mánuði átti ég rétt nægan pening eftir fyrir lestarferðinni útá völl og mögulega að fá mér eitthvað að borða útá vellinum meðan ég beið eftir flugvélinni sem kom 5 tímum eftir að ég mætti á staðinn. Hafði nú samt nóg að gera, margt að skoða, lesa sögu Hringadróttins, spila hernaðarkænskuleiki og hlusta á tónlist. Síðan tók við miður skemmtileg flugferð. Eini vegurinn sem hún var ekki góð er hvað ég þoli ekki að hjá öllum öðrum flugfélögum en Icelandair kostar allur matur og það ekkert ódýrt. Hlakka eiginlega til matarins í vélinni heim til Íslands. Fékk samt heimaeldaða pizzu í gær sem var frábær og svo upphitað pasta núna, svo ég er að fýla það í botn að fá eitthvað annað en skyndibita
Sjii hvað ég er gamall :S 26. mars, 2008
Posted by Ásgeir in Pæling, Þýskaland.8 comments
Hey, muniði eftir því þegar skólar voru tvísettir? Kanski ein spurning fyrst. Muniði hvað það er þegar skóli er einsettur/tvísettur? Það er svona þegar maður var í skólanum fyrir eða eftir hádegi, gat valið, en síðan var þessu breytt í bara fyrir hádegi.
Var að lesa bréf um þjónustu Strætó við börn og þá kom þessi lína fyrir:
Eftir að skólar eru einsettir …
Fyrst mundi ég ekki hvað þetta einsettir væri, en svo kom það í kollinn á mér og samstundis uppgötvaði ég hvað ég væri orðinn ótrúlega gamall :S Baldur var líka að segja mér að í 4. bekk þá hafi hann verið í skóla eftir hádegi, reyndar því að grunnskólinn í Hveragerði rúmaði ekki alla nemendurnar, en vá, ég trúi því ekki það sé svona langt síðan.
Nafnavenjur eru undarlegar hér á landi. Nokkur nöfn sem ég hef séð á starfsmannaspjöldum á KFC: “Olli”(kona), “Safae” og “Shpresa”. Ekki einu sinni spyrja mig hvernig maður ber þetta síðasta fram :/
Blóð, sviti og tár 24. mars, 2008
Posted by Ásgeir in Daglegt líf, Pæling, Þýskaland.5 comments
Páskamánudagur er í dag. Þjóðverjar eru greinilega hugmyndasnauðari en Íslendingar þar sem hérna er bara Páskasunnudagur og Páskamánudagur. Skírdagur er reyndar Græni fimmtudagurinn (Grün Donnerstag). Svo heldur hugmyndasneyðin áfram þar sem föstudagurinn langi er óþýðanlegi “Karfreitag” og laugardagurinn, sem er ekkert merkilegur hjá okkur, heitir “Karsamstag” og viðeigandi heitir Dymbilvikan “Karwoche”. Vá hvað ég veit mikið.
En ég var næstumþví farinn að svitna mjög mikið áðan. Spurði konuna í afgreiðslunni á laugardaginn hvort það væri allt opið í dag einsog venjulega mánudaga eða frídagur. Hún sagði að það væri ALLT lokað, semsagt frídagur, og ég tók því sem það væri semsagt einsog venjulegur sunnudagur hérna þegar allar verslanir eru lokaðar en veitingastaðir og söfn eru opin. Þannig var þetta allavegana á föstudaginn. Svo þegar ég nennti að rífa mig uppúr bælinu og fá mér morgunmat um 4 leitið í dag rölti ég útá næsta Subway en þar var lítill sætur miði í glugganum sem tilkynnti mér það væri lokað í dag. Þá fór ég að velta því fyrir mér hvort að konan hefði í alvörunni verið að meina að það væri gersamlega ALLT lokað í dag, svona einsog jóladagur á Íslandi fyrir nokkrum árum. Með hland fyrir hjartanu tók ég götulestina niðrí bæ. Þá sá ég fyrst að það sat fólk inná einum veitingastaðnum og svo var hurðin opin á Subway við hliðiná og ég andaði léttar
Þurfti ekki að lifa á afgangnum af páskaegginu og saltkringlum í dag..
Súrt efni 23. mars, 2008
Posted by Ásgeir in Pæling, Vitleysa, Þýskaland.2 comments
Ég er orðinn handviss um að það er einhverskonar undarleg ráðstefna hérna í bænum þessa dagana. Það er bara óeðlilega mikið af einhverju goth-fólki að ráfa um götur borgarinnar. Allir undarlega svartklæddir og hvítmálaðir í framan með dauðahótunarnælur á Marilyn Manson töskunum sínum. Endalausir hópar af þessu fólki útum allt bara. Mest fór það nú samt í mig þegar ég var í lestinni og sá tvær svona stelpur. Þær voru sennilega ekki eldri en svona 13-14 ára. Önnur þeirra var í skóm með sirka 15 sentimetra þykkum skósóla en samt náði hún mér bara rétt uppá bringu. Alveg ótrúlegt!
En smá könnun, hversu margir hugsuðu súrefni þegar þeir lásu titilinn? Ég var að fatta hvað orðið ’súrefni’ er kjánalegt. Manni finnst O2 ekkert vera eitthvað súrt. Tengir það allavegana ekkert við þau efni sem smakkast súr, sítrónusafi til dæmis. Ég fór að velta þessu fyrir mér þegar ég lærði að súrefni á þýsku er einmitt Sauerstoff, sem er bara bein þýðing á íslenska orðinu, þó kanski í hina áttina.
Wikipedia:
Bei der Reaktion der Oxide von Nichtmetallen in hohen Oxidationsstufen bilden sich die sogenannten Sauerstoffsäuren, die für die Namensgebung des Sauerstoff verantwortlich sind.
Þarna fann ég smá útskýringu á þessu. Lauslega þýtt: “Við efnahvörf oxíða og málmleysingja í háum oxunarskrefum myndast svonefnd súrefnissýra, sem svarar fyrir nafngiftina á súrefninu”. Váh, er ég ekki bara orðinn ágætur í þýskunni
Ég hef nú oft velt því fyrir mér hvort að litla, sæta Ísland sé einhverntíman í heimsfréttunum. Hef nú horft dáldið á CNN hérna en aldrei fengið fréttir af flóttamönnum á stríðshrjáða klakanum eða af æsispennandi forsetakosningum. Í morgun skeðu samt undur og stórmerki. Litla landið okkar var í sjónvarpinu, en ekki í fréttunum. Rakst á “Ripley’s unglaubliche Welt” (Ripley’s ótrúlegi heimur) á einni stöðinni. Þar var verið að fjalla um jarðvarmaorkuver og ótrúlegt en satt að almenningur væri að baða sig uppúr affallinu frá þessu orkuveri. Var þá ekki bara Bláa Lónið, eða Blaue Lagoonen, í “ótrúlegt, en satt” þættinum góða
Páskafrí 21. mars, 2008
Posted by Ásgeir in Daglegt líf, Þýskaland.2 comments
Er núna að njóta tveggja daga páskafrísins míns
Reyndar treður ein helgi sér þarna inná milli þessara daga. Síðan eru ekki nema fjórir skóladagar eftir, og á tvemur þeirra eru próf. Það er semsagt svona B1-próf í næstu viku og það semsagt gildir (held ég) sem skírteini uppá það að maður kunni nógu mikið í þýsku til að læra hérna í háskóla. Hef nú ekki miklar áhyggjur af þessu þar sem líf mitt veltur ekki á þessu einsog hjá sumum öðrum í bekknum sem ætla sér að læra hérna í haust.
En fyrir nokkrum árum sá ég frétt um að það væri komin ný útgáfa af Monopoly spilinu vinsæla. Þessi var nútímaleg með plastkortum og “bankareiknivél” í stað pappírspeninga. Fylgdi reyndar með fréttinni að þessi útgáfa væri til að byrja með gefin út í Þýskalandi. Þegar ég fór í eina dótabúð hérna um daginn þá mundi ég eftir þessu og ákvað að leita. Vitiði bara hvað, ég fann svona debetkorta-Monopoly
En það eru tvö vandamál. Annað (sem er svosem í sjálfu sér ekkert vandamál) er að ég fann þetta bara í einhverji Simpsons útgáfu, semsagt eru kallarnir og göturnar og allt úr Simpsons. Kanski skemmtilegt að spila, en gefur ekki sama fýlinginn og venjulega útgáfan. Hitt vandamálið, sem er raunverulega vandamálið, er að þetta er náttúrulega á þýsku (einsog allt hérna). Eini vinur minn sem ég man eftir að skilji þokkalega þýsku er Rakel, en svo eru einnig örfáir sem kunna að segja Ich heisse og ekki mikið meira. Ætli það yrði þá ekki sennilega bara þannig að ég myndi bara að spila við sjálfan mig þar sem enginn annar skildi neitt í þessu og nennti að spila við mig.. :/ vandamál vandamál!
Legoland á morgun
vonandi ef veðrið verður ágætt..
Það er víst líf á Mars!

Æ, ég ætla bara aðeins að leggja mig 14. mars, 2008
Posted by Ásgeir in Daglegt líf, Þýskaland.4 comments
Byrjum á formála. Ég á núna tvær vikur eftir hérna í Þýskalandi og þar með tvær vikur í skólanum, sem eru þó báðar skertar vegna páskafrís. Einmitt þessar tvær vikur er aðalkennarinn minn í fríi. Í þessari viku voru svo tveir bekkjarfélagar að hætta, tveir í næstu og svo erum við fjögur eða fimm sem hættum í vikunni þar á eftir.
Komum okkur svo að efninu. Eftir skóla í gær fórum við semsagt í smá kveðju”partý” á Hofbräuhaus. Við fengum okkur að borða og drekka og bara gaman og læti og svona skemmtilegt. En þar sem ég á í miklum vandræðum með herbergið mitt sef ég ekki voðalega mikið á næturnar, yfirleitt vaknaður svona um 6 leitið þegar morguntraffíkin treður háfaða inn um hripleka svalarhurðina mína. Þar af leiðandi var ég þreyttur þegar leið mín lá heim eftir þennan hitting. Ég ákveð að leggja mig stundarkorn fyrir kvöldmatinn, eins og ég hef oft áður gert. Ætla síðan að vakna til að fá mér kvöldmat og klára heimanámið og kíkja í tölvuna. Leggst upp í rúm um sjöleitið og sofna værum svefni. Nokkru síðar vakna ég aftur og það fyrsta sem ég hugsa er “hvah, skóli strax?? hvað er eiginlega klukkan?”. Lít á síma á þá er hún bara EITT UM NÓTT!
Þá var þessi stutta kría mín sex tíma löng og ég glaðvakandi um miðja nótt og get ekkert sofnað, því ég var alveg búinn að sofa úr mér þreytuna. Þá fór ég bara að horfa á sjónvarpið og lesa Hringadróttinssögu og svona. Er síðan aftur farinn að geyspa um fjögur leitið og næ þá loksins að sofna aftur.
Lenti í smá vandræðalegu atviki áðan. Var að fara niðrí bæ að fá mér að borða og labba útá lestastöð. Er að hlusta á Olsen Olsen (lag með Sigurrós, að sjálfsögðu) á ipodinum og er svona að raula með. Síðan kem ég á stöðina og þar er enginn, en ég sé einhverja stelpu labba á göngustígnum fyrir aftan mig, hinu megin við götuna. Á ákveðnum parti í laginu er ég í svo miklum fíling að ég tek að syngja af fullum krafti með en í miðri línu sný ég mér til hægri. Stendur þá ekki þessi stelpa við hliðina á mér, ég að syngja á fullu og krossbregður þegar ég sé hana
Ég lýt bara undan, mjög vandræðalegur, en held samt áfram að syngja með, bara aðeins lægra, svona svo ég líti ekki algjörlega út einsog fáviti. Hún var samt bara ósköp venjuleg á svipinn, reyndar líka með ipod í eyrunum, svo vonandi hefur hún ekki heyrt voðalega mikið af þessu
Allt er nú til, ef maður veit hvar skal leita! 11. mars, 2008
Posted by Ásgeir in Vitleysa, Þýskaland.5 comments
Það er ýmislegt undarlegt sem ég hef fundið hér í borginni. Eða kanski ekki undarlegt, en eitthvað sem maður á ekki að venjast heima á Íslandi. Ég fór á rúntinn í dag og tók nokkrar myndir af því sem ég hef aldrei séð áður á Íslandi.
- Maggi búðin

Já, þetta er víst súpubúðin. Fór nú ekki inn, en ég held þetta sé samt meira blanda af veitingahúsi með áherslu á súpur og kanski smá búð með vörum þeirra. - Dalur

Þetta er stór verslunargata. Nafnið á henni þýðist “Dalur” á íslensku. Ég hef reyndar ekki komið á Eskifjörð, en ég hef nú ekki séð þetta götuheiti annars staðar - Fína klósettið

Það eru reyndar ókeypis almenningsklósett á lestarstöðinni, en þarna er hægt að borga 1,1 evrur fyrir að fara á extra hreint klósett. - Franskar í postulíni

Svona líta þær út, franskarnar sem Andra Tý langar svo mikið í. - Nuddstólar

2 evrur í raufina og þú færð 10 mínútur af unaðs-baknuddi. Þessir eru í verslanamiðstöðinni en ég sá þá líka á náttúrufræðisafninu. - Útikaffihús

Væri þetta ekki bara fokið á Laugarveginum í mars? - 7 hæða útivistarbúð

Sú allra stærsta sem ég hef séð. Hagkaup í Holtagörðum útivistarverslananna. 7 hæðir af öllu sem tengist útivist. Ef ég vinn milljón í lottói ætla ég að fara þangað. - Vegvísir að veitingahúsum

Ég minnist þess ekki að hafa séð skilti sem bendir á Argentínu eða Bæjarins bestu eða eitthvað álíka..?
Svo er það allra síðasta, en ég þorði ekki að taka mynd af því. Ég kýs að kalla það “atvinnu rónanna”. Það hafa nú allir séð fólk gramsa í ruslatunnum að leita að flöskum til að selja, meiraðsegja á Íslandi líka. Sumir hérna eru samt með vasaljós á sér til þess að sjá betur ofaní tunnurnar svo það fari nú ekkert framhjá þeim
Fyrir ykkur sem nenntuð að lesa þetta allt, þá eru hérna smá tipps um hvernig má spara smá tíma í lífinu:
Mesta snilldin finnst mér þetta hvernig má fljótskræla soðið egg. Verð að prófa það einhverntíman
Ég fór á safn í dag 9. mars, 2008
Posted by Ásgeir in Daglegt líf, Þýskaland.10 comments
Þá hugsa margir “wtf? er ég á réttu bloggi, ekki er hann Ásgeir náttúrufræðingur að skoða listaverk og menningu í metróborgum Evrópu??”. En jú, þetta var sko nefninlega svona náttúrufræðisafn
Þetta var í fáránlega stóru húsi, ég var sko sirka fimm tíma þarna inni og náði ekki að skoða allt. Þarna eru sýningar um stjörnufræði, efnafræði, eðlisfræði, líffræði, lyfjafræði, flugvélar, geimferðir, prentsöguna, gler og glergerð, keramik, pappír, vatnsaflsfræði, brúargerð, tölvur, rafmagn, segulsvið, námur, olíu og jarðgös, málma, samskipti, stórvirkar vinnuvélar og bara allt þarna inná milli. Nokkar myndir á myndasíðunni:
Svo fór ég nú líka í klippingu í gær. Fyrirgefðu Andri Týr, en ég var næstumþví hættur að sjá út og sturtuferðirnar tóku 10 mínútum lengur en venjulega afþví það er svo fáránlega leiðinlegt að þurrka svona mikið hár..

Er ég ekki alveg eins og kallinn sem ég sagði ég yrði einsog ef ég færi í klippingu hérna úti? Sjá: http://asgbjo.wordpress.com/2008/02/01/a-morgun/
Veit nú ekki alveg með það.. :/
Dýragarðurinn 3. mars, 2008
Posted by Ásgeir in Daglegt líf, Þýskaland.8 comments
Komnar myndir úr honum. Fór þangað í gær og átti gott rölt. Skoðaði alls kyns dýr, t.d. ísbjörn, mörgæsir, vilta hesta, pónýhesta, lamadýr, ljón, tígrisdýr, galapagosskjaldbökur, Gaur (já, Gaur.. sjá myndir) og margt fleira skemmtilegt.
Kennarinn sagði mér að hún hefði farið um daginn þegar það var snjór og þá hefðu mörgæsirnar bara verið úti að leika sér, ekki í búrinu heldur meðal fólksins.. Hefði verið til í að sjá það..
Rónarnir niðrí bæ 1. mars, 2008
Posted by Ásgeir in Vitleysa, Þýskaland.5 comments
Eða við skulum kanski frekar kalla þetta fátæklingana niðrí bæ, kanski ekki allir sem hafa drukkið svo mikið að þeir ráfi um Hauptbahnhof með fullt af plastpokum og notaða pappabolla. EN, mamma sagði einhverntíman að bróðir minn væri brjálaður út í þessa betlara niðrí bæ, útafþví að hann hefði einu sinni séð einn kaupa sér rándýra túristapylsu á Strikinu í Köben þegar hann hefði getað keypt miklu meira af mat fyrir sama pening í einhverjum ódýrum súpermarkaði. Ég er mjög sammála honum eftir gærdaginn þegar ég sá eina konu með einhvern svona Chikita drikk, svona blandaðann ávaxtasafa, sem er seldur á lestarstöðinni, pressaður á staðnum úr ferskum ávöxtum. Ég er nú ekki alveg með það á hreinu, en ég myndi giska á að eitt svona glas kosti sirka 3 evrur (300 krónur). Ég held að hún hefði getað fengið kíló af banönum fyrir nákvæmlega sama pening og verið miklu saddari fyrir vikið..
Það er snjór hérna núna
En samt ekkert svona skemmtilegur snjór einsog heima. Þegar ég vaknaði í morgun var heví vindur úti og augljóslega búið að rigna eitthvað. Síðan aðeins seinna var farið að rigna. Núna áðan heyrði ég síðan þrumur og þá kom slydda en síðan aðeins seinna byrjaði að snjóa bara :/ Þannig að núna er veðrið svona bara “eitthvað”. Held það sé stormviðvörun í nyrðri hluta landsins, með vind alveg upp í 25 m/s
Haha, þessir útlendingar, þetta er nú bara léttur vindur heima
